innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar eða vangaveltu. Ég get klárlega tekið undir hluta af því og kannski sérstaklega það sem hv. þingmaður nefndi hér síðast. Það var nefnilega mjög áberandi og verður mjög áberandi í því þegar við erum búin að reyna eitthvað, hvernig það getur haft áhrif á almenningsálitið. Ég nefni t.d. aftur Hvalfjarðargöngin, að þegar verið var að gera greiningar á því hvað landsmenn segðu almennt um gjaldtöku á vegum, þá var skýr mismunur á landshlutum, t.d. hvað það varðar að Vestlendingar voru með miklu jákvæðara viðhorf gagnvart því en aðrir landshlutar. En grunnurinn að því að það verði sátt um svona er í rauninni að almenningur hafi eitthvert aðgengi að því að raða niður þessum verkefnum. Við horfum t.d. til Betri samgangna á höfuðborgarsvæðinu og við horfum þá til innviðafélagsins á landsbyggðinni. Ég sé fyrir mér, eða það er ekki ólíklegt, að það komi upp tortryggni og menn hafa velt fyrir sér meðal annars rekstrarkostnaði, umfangi stjórnunar o.s.frv.
Svo er líka hitt að innviðafélagið er ekki að fara að sinna veghaldi í þeim skilningi. Innviðafélagið er væntanlega að fara að semja við aðila, hvort sem það er Vegagerðin eða einhverjir sjálfstæðir aðilar, og það liggi þá alla vega fyrir hverju sinni hvaða hlutverk t.d. þessi félög hafa og að það sé eftirlit með þeim. En það sem skiptir lykilmáli í mínum huga (Forseti hringir.) er að ákvörðunin að einhverju leyti fari í gegnum Alþingi þannig að menn geti haft áhrif á það hvaða kostir eru teknir fyrir á samgönguáætlun.