157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:05]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Nú höldum við áfram að ræða frumvarp um innviðafélag. Ég vil byrja á því að segja að þessi hugmynd hefur verið dálítið í umræðunni og held ég að hún sé í grunninn góð. Án þess að ég geri mönnum upp einhverjar skoðanir þá heyrist mér á umræðunni að talsverður velvilji hafi verið gagnvart þessari hugmynd er varðar innviðafélag, en svo er það spurning um framkvæmdina.

Í umræðunni hefur þetta verið borið saman við Hvalfjarðargöngin og þá framkvæmd á sínum tíma. Það er helst um það að segja, herra forseti, að eins vel lukkuð og sú framkvæmd var, þrátt fyrir einhverjar efaraddir eðli málsins samkvæmt á þeim tíma, er engu að síður um gjörólík mál að ræða og í raun varla hægt að bera þessi tvö mál saman. Það hvernig frumvarp um innviðafélag er skrifað er í eðli sínu gjörólíkt framkvæmdinni um Hvalfjarðargöngin. Í því verkefni var horft til þess að fjármögnunaraðilar og Spölur legðu á gjald og að ákveðnum tíma liðnum félli gjaldtaka niður og þjóðin eignaðist framkvæmdina, mannvirkið. Ekkert slíkt á sér stað í innviðafélaginu, herra forseti, og því eru þessi mál eðlisólík.

Þegar ég fór í andsvör við hv. þm. Dag B. Eggertsson var ég að velta fyrir mér 40. gr. stjórnarskrárinnar í samhengi við þetta félag. Hv. þingmaður benti mér á að hann liti svo á að 6. gr. svaraði þeirri spurningu sem ég hefði um það og laut að því að ég átti svolítið erfitt með að sjá hvernig það getur verið heimilt að taka almannaeigur og setja þær inn í C-félag sem hefur svo söluheimild úr sjálfu sér, til að rifja upp þau orðaskipti sem áttu sér stað milli mín og hv. þingmanns. Ég átti svolítið erfitt með að átta mig á því hvernig slíkt félag, sem hefur söluheimild úr sjálfu sér, samræmdist 40. gr. stjórnarskrárinnar.

Í 6. gr., sem hv. þingmaður benti mér á, er liðurinn Kaup og sala hlutabréfa og aðrar ráðstafanir vegna umsýslu félaga. Þar undir eru liðirnir 5.1, 5.2 og það allt saman. Ég skildi hv. þm. Dag B. Eggertsson í okkar samskiptum þannig að verið væri að vísa til 6. gr. frumvarpsins. Eðli málsins samkvæmt skildi ég ekki alveg hvað var verið að fara en í andsvörum mínum við hv. þm. Grím Grímsson kom fram að hann liti svo á að hv. þm. Dagur B. Eggertsson hefði verið að tala um 6. gr. fjárlaga. Ég fór því að skoða 6. gr. fjárlaga og þar er ýmislegt listað upp sem ráðherra er heimilt að selja. Til að taka einhver dæmi, að selja eignarhlut ríkisins í Sparisjóði Austurlands hf. og að nýta samningsbundinn eða lögbundinn rétt til innlausnar eða kaup á hlutum í fjármálafyrirtækjum sem að hluta eru í eigu ríkisins. Svo heldur upptalningin áfram. Liður 5.6, að selja óverulega eignarhluti ríkisins í félögum, er eiginlega eini liðurinn sem ég tel að geti átt við nema þetta sé einhvers staðar allt annars staðar í 6. gr. Það er þá ekki undir liðnum Kaup og sala hlutabréfa og aðrar ráðstafanir vegna umsýslu félaga, sem þetta yrði vissulega. Ég tel mig ekki enn þá hafa fengið svarið við þessari spurningu, a.m.k. ekki fullnægjandi svar, en ég efast ekki um að það eigi eftir að koma upp eftir því sem umræðunni vindur fram.

Mig langar að gera annað að umfjöllunarefni varðandi þetta innviðafélag eða þá fyrirmynd sem hreinlega er skrifað inn að sé fyrirmyndin að verkefninu, danska verkefnið Sund og belti. Mér sýnist að búið sé að gera lagabreytingar alla vega fimm sinnum hvað varðar það verkefni. Ég hef haldið því fram í andsvörum að mér hafi ekki þótt þetta lagafrumvarp hafa fengið nægilega ítarlega umfjöllun og ekki verið nógu þroskað til að koma fram og á eftir að fara betur yfir það síðar í þessari ræðu. Mér finnst framkvæmdin á félaginu bera þess merki að frumvarpið hafi verið afgreitt dálítið hratt og þarfnist frekari vinnu. Þess vegna nefni ég þetta dæmi um fyrirmyndina. Við hljótum að geta sammælst um það í þessum sal, ef við sjáum sannarlega vankanta á því hvernig framkvæmdin er skrifuð upp, að gera ekki að óþörfu, eins og fyrirmyndin hefur neyðst til að gera, ítrekaðar breytingar á samþykktunum.

Svo er annað sem hefur fengið talsverða umræðu en það er þetta samtal sem hefur átt sér stað í salnum, og er klárlega skrifað inn, um hjáleið. Ein af grunnforsendunum fyrir því að þessi hugmynd virki er að það sé eitthvert val. Síðan eru nefndar einhverjar framkvæmdir og mest hafa fengið athygli einhverjar bollaleggingar er varða Kjalarnesið og svo sem eru komnar hugmyndir að lausnum þar. Minna hefur þó verið rætt um hina stjörnumerktu framkvæmd milli Þelamerkur og Akureyrar. Það verður að segjast eins og er, forseti, að ég hygg að ég sé ekki einn í þeim hópi sem á afar erfitt með að finna einhverja hjáleið eða möguleika á hjáleið á þeirri leið. Hvernig þetta er skrifað upp er enn eitt dæmið um að málið sé einfaldlega ekki tilbúið. Alveg sama hversu góð hugmyndin var þegar lagt var af stað með hana er frumvarpið, og kemur það fram í greinargerðum, í raun og veru ósammála sjálfu sér. Við getum engan veginn farið af stað í verkefni af þessari stærðargráðu með frumvarp sem er í grunninn ósammála sjálfu sér. Ef einhver þekkir hjáleið milli Þelamerkur og Akureyrar þá þigg ég ábendingar um það. Ég átta mig ekki á því hvaða leið það gæti verið.

Ýmislegt fleira hefur verið sagt og fjallað um í þessari umræðu sem skýtur svolítið skökku við. Til að mynda er hreinlega búið að lofa því í þessum ræðustóli að farið verði í Fljótagöng strax undir þessu félagi. Vissulega er þarna skrifuð inn heimild fyrir svokölluðum A3-félögum, sem eru framkvæmdir sem eru ekki arðbærar og geta ekki verið inni í móðurfélaginu, C-félaginu, en þær geta heldur ekki verið fyrsta framkvæmd og staðið einar og sér. Hvers vegna segi ég það, herra forseti? Vegna 50%-reglunnar. Þar fyrir utan — af því að við ræðum samgönguáætlun samhliða þessu máli, ekki er hægt að slíta þetta í sundur og getum við ekki rætt þessi mál eins og þau séu óskyld fyrirbæri — erum við í raun og veru búin að lofa einhverju og þar af leiðandi byggja upp væntingar til einhvers á ákveðnu landsvæði sem við finnum svo ekki einu sinni peninga fyrir. Ef ég man rétt er áætlað að framkvæmd Fljótaganga sé upp á sirka 21,5 milljarða. Miðað við áætlaða umferð yrði ríkið, þótt þetta væri A3-félag, alltaf að koma með eitthvað á milli 18 og 19 milljarða. Þeim er hvergi hægt að fletta upp og við finnum þá hvergi. Ég óttast því að búið sé að gefa væntingar og loforð um eitthvað sem getur ekki farið af stað sem hluti af þessu máli, þ.e. innviðamálinu. Þetta hefur fengið svolitla umræðu í þessum sal og hefur verið spurt út í þetta nokkrum sinnum. Þetta er annað dæmi um spurningu þar sem svörin koma ekki. Hvar eru þessir sirka 18,5 milljarðar sem ríkið þyrfti að koma með á móti? Ekki er gert ráð fyrir þeim í fjárlögum og ekki í fjármálaáætlun að því ég best veit. Ég ítreka það sem ég hef nefnt áður í ræðunni, að þetta mál hefði þurft að fá meiri umræðu í nefndinni og þroskast meira. Það hefði verið betra fyrir alla, hvort heldur sem er þingmenn eða landsmenn alla, ef málið hefði ekki birst í þingsalnum fyrr en hugsað hefði verið fyrir öllum þessum augljósu spurningum.

Líka hefur verið rætt um hugtak sem kallað er greiðsluvilji. Hann er oft hægt að mæla og er þá mældur gagnvart einhverri tiltekinni framkvæmd og mælist oft á þeim svæðum þar sem svartsýnin er hvað mest, t.d. fyrir vestan þar sem fólk er algerlega búið að gefa upp vonir um einhverjar raunverulegar samgöngubætur eða á norðaustursvæðinu og Austurlandi sem fer mjög illa út úr samgönguáætluninni. Þá mælist greiðsluvilji oft hár af því að fólk er jafnvel farið að trúa því að það muni ekkert gerast nema einhverjar slíkar leiðir verði búnar til. Í því samhengi, herra forseti, verður að halda því til haga að búið er að segja við þetta sama fólk: Við settum á hækkun veiðigjalda til að geta farið í stórfellt átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja og keyrðum inn algerlega vanhugsað og illa undirbúið mál sem við köllum í daglegu tali kílómetragjaldið, þar sem allar svörtustu spár okkar úr þessum stóli hafa gengið eftir, þ.e. um það hvernig innleiðingin á því myndi ganga fyrir sig og flækjustigið. Kílómetragjaldið var rökstutt með sama hætti. Það var sett á til að fara í stórfellt átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja. Það er svo sem hægt að rifja upp fleiri dæmi. Hægt er að rifja upp stórfellda hækkun vörugjalda sem var samþykkt fyrir síðustu áramót.

Allt miðar þetta að því sama sem er í raun og veru endurtekning á áratugagamalli orðræðu sem átti sér stað þegar bifreiðagjöldin voru sett á á sínum tíma; að fara í stórátak í samgöngumálum. Hér er í raun og veru verið að leggja til að til þess að hægt sé að flýta framkvæmdum og framkvæma þetta stórátak sem kílómetragjaldið og veiðigjöldin og allt þetta áttu að standa undir, verði farin þessi innviðaleið með því að stofna þetta innviðafélag sem muni svo taka gjald. Eðlilega munu fjárfestar koma inn og vonandi verður einhver erlend fjárfesting og erlend þekking. Það kallar á gjaldtöku á tilteknum köflum, í einhverjum göngum eða eftir atvikum á einhverjum brúm eða slíku. Þá hækkum við enn skatta á ökutækjaeigendur og ekki bara á þá heldur alla því allir nota samgöngukerfið með einhverjum hætti, líka þeir sem engan eiga bílinn. Þeir nýta sér væntanlega almenningssamgöngur og þær vörur sem þeir kaupa eru eðli málsins samkvæmt fluttar á milli staða. Allir sem hér búa nýta því með einhverjum hætti samgöngukerfið.

Þarna er enn verið að bæta í og þess vegna finnst mér eðlileg spurning í umfjöllun um þetta innviðafélag hvort ekki sé sjálfsögð krafa að eitthvað annað falli út á móti. Ef við innleiðum til allrar framtíðar eitthvert nýtt kerfi, sem á sér svo sem erlendar fyrirmyndir, að hér greiði menn fyrir notkun á ákveðnum vegarköflum sem mun svo væntanlega fjölga eftir því sem árin líða — þá keyra menn í gegnum einhverja rukkunarpósta hér og þar á landinu — þá getum við ekki bætt því ofan á allar þær skattahækkanir sem við höfum nú þegar samþykkt í þessum sal, illu heilli, öðruvísi en að vera a.m.k. heiðarleg með það og tala þannig að til standi að fara í umtalsverðar skattahækkanir. Mér finnst sú krafa alla vega vera algjör lágmarkskrafa, að hlutir séu kallaðir sínum réttu nöfnum og að menn gangist við þeim, nema ríkisstjórnin sé tilbúin að fella eitthvað annað út á móti á þeirri forsendu að verið sé að breyta um kerfi eins og gert var við innleiðingu á kílómetragjaldinu. Þá var eldsneytisgjaldið lækkað á móti. Reyndar var fyrirsjáanleg þróunin um hvernig þetta myndi allt saman fara og voru kolefnisgjöldin hækkuð í staðinn og þar fram eftir götunum. Það var þó alla vega viðurkennt að við kerfisbreytinguna þyrfti eitthvað annað að fara út á móti. Hér sé ég ekki að gerð sé minnsta tilraun til þess að gangast við því að með innleiðingu á nýju innheimtukerfi þurfi eitthvað annað að falla út á móti.

Síðan er ekki hægt að ræða þetta, herra forseti, öðruvísi en að nefna tölu sem var nefnd aftur og aftur í umræðunni um kílómetragjaldið, þ.e. það markmið að innheimta af ökutækjum í landinu myndi nema 1,7% af vergri landsframleiðslu. Það er reyndar einhver furðutala sem enginn hefur getað útskýrt. Og af hverju af vergri landsframleiðslu? Það er enn þá furðulegri tenging. Hvað ætlum við að gera ef hér verður, sem hefur því miður ekki verið vandamál undanfarið, verulegur uppgangur, ef hér koma ný gagnaver inn í hagkerfið, ef góð loðnuvertíð verður og góð síldarvertíð og verulegar fjárfestingar í einhvers konar iðnaðaruppbyggingu, ef eitt járnblendifyrirtæki eða álver bætist við? Þá stækkar þjóðarkakan. Þarf þá að auka skattheimtu og skattlagningu á ökutæki? Hin hliðin á þeim sama peningi er sú sem við höfum upplifað undanfarið og því miður bárust fréttir í dag um að slökkva þyrfti á einum ofni, einu keri. Ef samdráttur verður, á þá að lækka skatta á ökutækjaeigendur af því að þeir þurfa að fylgja þessu 1,7%? Það er einhvers konar hugsanavilla sem þarna er í gangi.

Svo ég ljúki máli mínu á því, herra forseti, þá minnir þetta mig á skoðanakönnun sem fram fór fyrir nokkrum árum síðan og var tengd við verga landsframleiðslu sömuleiðis. Hún varðaði vilja fólks til að binda það í hlutfallstölu hve mikið ætti að fara í heilbrigðiskerfið. Ég hygg að margir hér inni muni eftir þeirri skoðanakönnun og var tiltölulega fljótlegt og einfalt að útskýra að það gæti aldrei gengið að vera með fasta tengingu við verga landsframleiðslu hvað varðar framlög til heilbrigðismála af því að einhver sveifla yrði í framlögum til heilbrigðismála sem enginn sæi fyrir.