157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:26]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans góðu yfirferð hér. Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann um þessi stjörnumerktu verkefni. Nú erum við að ræða hér samhliða innviðafélaga og samgönguáætlun, þetta hangir allt saman. Inni í samgönguáætlun núna er sérstök tafla og kafli í nefndaráliti meiri hlutans þar sem er talað um einn stjörnumerktan veg, Kjalarnesveg, upp á 6,3 milljarða. Þá er sagt: Ef innviðafélagið tekur Kjalarnesveginn, sem það getur tæknilega séð ekki gert miðað við reglur innviðafélagsins um að það þurfi að vera varaleið, ekki nema það hangi saman við Hvalfjarðargöng og Sundabraut, svo því sé nú haldið til haga, þá munu þessir 6,3 milljarðar detta inn. Í þessari ágætu töflu þar sem var búið að úthluta þessum peningum eru strax framkvæmdir á næsta ári sem eiga að taka úr þessum 6,3 milljarða potti. Það má nefna hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn, hrunvarnir á Suðurfjarðavegi, aðflugsljós á Akureyri og svo deilist þetta niður á nokkur ár. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum frá innviðafélaginu er þetta ekkert að fara að gerast í haust. Þessir 6,3 milljarðar og Kjalarnesvegurinn eru ekki að fara inn í innviðafélagið á næstunni. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann í ljósi þess: Hvað erum við þá að ræða í þessari samgönguáætlun tengt innviðafélaginu þegar vegur sem tæknilega séð getur ekki farið inn í innviðafélagið nema hann hangi saman með tveimur öðrum samgöngumannvirkjum, sem á síðan eftir að ganga frá og við erum að setja inn framkvæmdir á næsta ári, sem eru tengdar þessari aðgerð — hvað finnst hv. þingmanni um þessi vinnubrögð?