157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðari spurningarnar. Ég held að það hafi komið fram í ræðu minni áðan og það hefur ekkert þurft að lesa mikið á milli línanna til að átta sig á því hvert ég er að fara. Ég er hræddur um að það sé búið að gefa væntingar um þessa tilteknu framkvæmd, þ.e. Fljótagöngin, og hvenær hún muni hefjast sem muni ekki reynast auðvelt, jafnvel bara nánast útilokað, að standa við, í það minnsta sem hluti af þessu innviðafélagsmáli. Nú erum við komin vel inn í júní og ef þetta á að verða fyrsta verkefnið af stað sem svokallað A3-dótturfélag innviðafélagsins, sem er C-félag, þá má það ekki vera yfir 50% af heildarhlutanum. Ég bara sé ekki, hv. þingmaður, því miður, ég get ekki svarað spurningunni því ég sé ekki með hvaða hætti þetta verður framkvæmt og þess vegna óttast ég að þarna sé búið að gefa væntingar sem munu ekki ganga eftir.

Þá kemur líka alls konar annar freistnivandi, ekki síst fyrir sitjandi ráðherra, að fara í tilraunir til einhvers konar hliðrunar á einhverju til að reyna að koma verkinu af stað eða endurskilgreina hvað það er að verk sé formlega hafið. Nú bara að hugsa upphátt, hv. þingmaður, fyrir hönd ráðherra, og reyndar óumbeðið, að það væri auðvitað hægt að fara í einhverja tiltölulega krúttlega litla vegagerð til að geta sagt að verkið sé hafið. En ég held að almenningur leggi þann skilning í það hugtak að þar með sé hafin framkvæmd við göngin sjálf, þ.e. borun.