157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:35]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum ágæta ræðu og koma hér aðeins upp til að skerpa á skilningi varðandi 6. gr. heimildina. Það er rétt skilið, eins og fram kom hjá hv. þm. Grími Grímssyni í orðaskiptum við þingmanninn hér fyrir helgi, að um sé að ræða 6. gr. fjárlaga en ekki frumvarpsins. Þar værum við ekki endilega að fella þetta undir einstakar greinar í núgildandi 6. gr. heldur kæmu nýjar greinar inn sem vísuðu þá annaðhvort til einstakra vegkafla eða það væri einhver almenn grein sem myndi vísa til verkefna innviðafélagsins. Það yrði bara þróað í tengslum við stofnun innviðafélagsins. Það væri 6. gr. fjárlaga sem gæti komið inn og mætt þannig sjónarmiðum stjórnarskrár sem þingmaðurinn hefur verið að taka upp með nokkrum rétti að þurfi að hugsa til enda.