157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:37]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir — ja, þetta var í sjálfu sér ekki spurning heldur kannski tilraun til að svara spurningum sem komu fram á fyrri stigum. Í svari hv. þingmanns kemur fram að það verði þá að skrifa slíka heimild inn. Það segir mér, herra forseti, að þarna er komið annað dæmi um eitthvað sem ég hugsa að hefði verið hægt að klára og vinna betur og lengra ef það hefði ekki legið svo mikið á einhvern veginn að ná málinu út. Ég hygg meira að segja, og held að ég hafi nefnt hér, herra forseti, í einhverjum af andsvörum mínum fyrir helgi, að umræðan í salnum hefði orðið með allt öðrum hætti ef frumvarpið hefði komið þroskaðra inn í salinn. Ég hef átt samskipti við þingmenn úr minni hluta hv. fjárlaganefndar sem voru til að mynda afar ósáttir við það hvernig frumvarpið var tekið út úr nefndinni. Þeir töldu málið hafa fengið litla sem enga umræðu í nefndinni eftir að gestakomum lauk.

Nú sit ég ekki lengur í hv. fjárlaganefnd en ef þetta til að mynda er rétt, herra forseti, þá er það annar áfellisdómur yfir meðferð málsins. Því þetta er af þeirri stærðargráðu, herra forseti, að ég held að það megi öllum vera ljóst að hér er mjög dýrt að gera mistök og þess vegna hefði ég haldið að þetta mál — ekki það, það getur tekið breytingum hér eftir, svo því sé líka haldið til haga — þurfi að þroskast meira og taka aðeins breytingum til að það náist breið sátt um þessa vegferð. Þar er lykilatriðið, herra forseti, hvað verður fellt niður á móti, því við getum ekki endalaust bætt við.