157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta svar og lýsa þeirri skoðun minni að mér finnst umræðan hafa verið málefnaleg í þingsal. Þingmenn hafa verið lausnamiðaðir en líka gagnrýnir og hafa bent á það sem vekur spurningar og þá erum við að reyna að svara því. Ég vil líka undirstrika að sumt mun óneitanlega og óumflýjanlega, og kannski ánægjulega, koma aftur til kasta Alþingis ef marka má reynslu erlendis frá þar sem svona innviðafélög eru stofnuð vegna þess að það er ýmislegt sem kemur upp úr dúrnum þegar farið er að ræða við fjármögnunaraðila og aðra. Danir og Færeyingar hafa gengið svo langt að setja sérlög um einstök verkefni vegna stærðargráðu þeirra og einhverra atriða sem viðkomandi fjármögnunaraðilar vilja ekki hafa svona óljós eða í lausu lofti og það getur vel verið að það komi til þess. Alla vega þá setjum við inn hér í félagið að lágmarki að það sé farið yfir málin í fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd í tengslum við undirbúning einstakra samninga um einstök verkefni til þess að þingið sé vel áttað og með á nótunum. Þarna er óneitanlega ákveðið samspil milli samgönguáætlunar og verkefna innviðafélagsins. Fjármögnunin getur ýmist verið af hálfu innviðafélagsins, að hluta af hálfu innviðafélagsins og með eiginfjárframlagi ríkisins og síðan eftir atvikum líka skapað svigrúm á samgönguáætlun. Þetta er auðvitað mjög margt sem tengist forgangsröðun og bara heildarsýn á þróun samgöngumála sem þingið á og þarf að hafa aðkomu að.