157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:41]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir vangavelturnar. Í þeim komu fram hugtök sem ég hef verið svolítið hugsi yfir; að skapa svigrúm fyrir aðrar framkvæmdir á samgönguáætlun ef innviðafélagið er að taka þessi stóru verkefni sem eru gríðarlega fjármagnsfrek, að það skapi svigrúm til annarra framkvæmda víða um land. Það má eflaust færa rök fyrir því. Það sem ég óttast hins vegar í þessari orðræðu, og við þekkjum það í okkar tiltölulega smáa, litla landi, við erum tiltölulega fámenn þjóð, er að það þarf kannski ekki nema tvær mjög stórar framkvæmdir í einu til að þær einar og sér séu farnar að hafa áhrif á efnahagsreikning ríkisins. Það sem ég óttaðist aðeins er að þetta svigrúm sem á að myndast samhliða þessu muni kannski ekki ganga fyllilega eftir vegna þess að þá verði menn farnir að tala um að það sé svo þensluhvetjandi í baráttunni við að halda niðri vöxtum og verðbólgu. Í C-félögum, alveg eins og Landsvirkjun og Isavia, og þetta þekkir hv. þingmaður úr setu sinni í hv. fjárlaganefnd, eru menn jafnvel að slást um tiltölulega litlar upphæðir, örfáar milljónir, hundruð milljónir hér og þar til að reyna að halda sig innan markmiða og ná hallalausum fjárlögum — sem ég held reyndar að séu farin. Síðan koma þessir stóru aðilar og tilkynna einhverjar framkvæmdir sem hv. fjárlaganefnd hefur engan möguleika á að bregðast við. Þess vegna held ég að það sé líka mikilvægt að inn í þetta frumvarp verði skrifað að pólitíkin eigi þarna eitthvert hlutverk, auðvitað með þessum armslengdarsjónarmiðum. Ég held að það sé nauðsynlegt í það minnsta að stjórnin verði skipuð af pólitíkinni, þeim flokkum sem hér sitja, til að tryggja eitthvert samtal milli stjórnar í slíku félagi og svo aftur þingsins.