157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:44]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér innviðafélag. Ég viðurkenni það að ég hef stundum kallað þetta einhverja svona hókus-pókus starfsemi þessarar ríkisstjórnar því að ég man vel eftir þeim yfirlýsingum sem dundu yfir okkur þegar samgönguáætlun var kynnt með yfirskriftinni „Ræsum vélarnar“. Forsætisráðherra birtist hér í myndbrotum á samfélagsmiðlum og sagði að nú væri þetta allt saman að hefjast. Það átti að laga vegina og byrja að bora og það strax. Þetta var sögulegt og þetta átti að gera með samgönguáætlun og þessu innviðafélagi. Þar af leiðandi er mikilvægt að þessi mál séu rædd í samhengi hlutanna.

Fyrst ætla ég að segja það, að ég er ekki á móti innviðafélagi sem slíku og hef reyndar síðan ég tók sæti hér á þingi átt oft samtöl um útfærslur á slíkum málum. Ég skil þá sýn og þau sjónarmið sem við höfum heyrt, hugmyndina um að búa til eins konar snjóbolta, eins og það hefur verið orðað, að búa til eitthvert fjármagn með því að rukka um eitthvað og geta svo haldið áfram einhverri uppbyggingu. Ég verð því að viðurkenna, að mér finnst eiginlega miður að við séum hér í dag á síðustu dögum þingsins, samkvæmt starfsáætlun alla vega, ég veit ekki hvort henni verður fylgt eftir eða ekki, að ræða þetta án þess að vera kannski búin að leiða þessi mál aðeins frekar í jörð. Það er því ekki í lagi að lesa í nefndaráliti að umfjöllun um málið í nefndinni hafi verið lítil og engin raunveruleg umræða milli nefndarmanna um þessa útfærslu. Hér er ljóst á umræðunni að það eru ekki endilega skiptar skoðanir um mikilvægi þess að stofna innviðafélag heldur kannski frekar skiptar skoðanir um hvað nefndarálit meiri hluta hv. fjárlaganefndar þýðir. Reyndar þegar hv. nefndarmenn stjórnarmeirihlutans koma svo hér upp í andsvör þá er líka gefið til kynna að ókei, það kunni að vera misfarið með eitthvað hér og að það kunni að vera ástæða til að skýra þetta frekar. Það er gott, virðulegur forseti, en ég skil ekki alveg tilganginn með því að við stöndum hér í þingsal og ræðum þetta frekar en að hv. fjárlaganefnd komi hreinlega saman, fari yfir málið, leiðrétti nefndarálitið eða komi sameiginlega með nefndarálit þannig að það sé þá alveg skýrt hvað átt er við. Við þetta geri ég ákveðnar athugasemdir. Ég á ekki sæti í fjárlaganefnd um þessar mundir og hefði haldið að það þyrfti að vanda mjög vel til verka í umfjöllun um þetta mál sem hér er undir, því það er nú ekki lítið sem búið er að lofa í tengslum við þetta stóra mál.

Svo ég grípi niður í álit meiri hluta fjárlaganefndar þá segir þar, með leyfi forseta:

„Tilgangur frumvarpsins er að stofna innviðafélag í eigu ríkisins sem ætlað er að vera fjármögnunar- og eignarhaldsfélag fyrir tilteknar samgönguframkvæmdir. Markmiðið er að flýta nauðsynlegum samgönguframkvæmdum frá því sem verið hefur undanfarin ár. Ávinningurinn ætti að koma fram í bættu umferðaröryggi, styttri umferðarleiðum og bættum tengingum milli byggða og atvinnusvæða.“

Virðulegur forseti. Ég er ekki algjörlega sannfærð um að við getum öll sameinast um þennan tilgang eða þessar setningar en þá er svo mikilvægt að frumvarpið geri nákvæmlega það sem þarna er sagt. En það segir líka í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta, að mikilvægt sé að hlutverk félagsins, fyrirkomulag fjármögnunar og valdheimildir séu vel afmarkaðar frá upphafi. Þá er eðlilegt að spyrja sig: Er það svo? Erum við, eins og málið liggur fyrir þinginu í dag, með vel afmarkað hlutverk og er fyrirkomulag á fjármögnun og valdheimildum vel afmarkað? Mér heyrist ekki, hvorki við lestur nefndarálits meiri hluta né minni hluta eða bara við að hlusta á þingmenn ræða saman. Mér finnst einmitt frekar að hér virðist vera ákveðinn samhljómur um það að þetta sé ekki vel afmarkað. Þá segi ég aftur að það færi betur á því að hv. fjárlaganefnd myndi bara setjast yfir þetta mál til að hægt væri að ná saman um það.

Virðulegur forseti. Í nefndarálitinu er farið aðeins yfir það sem helstu umsagnaraðilar voru að segja, og það er gott. Ég vil nota tækifærið og segja að það er mikilvægt fyrir okkur sem ekki sitjum í nefndinni og höfum kannski ekki tök á því að lesa allar umsagnir sem koma inn með öllum málum að það sé hægt að fara yfir það í nefndaráliti hvað umsagnaraðilar sögðu. En ef ég skil þetta rétt þá er kannski líka hægt að segja að einhverjar af þessum umsögnum séu ekki á misskilningi byggðar heldur byggðar á því hvernig frumvarpið var kynnt og lá fyrir í upphafi og þar af leiðandi kannski ekki að öllu marktækar miðað við það frumvarp sem við erum með í dag.

Ég ætla að fá að grípa inn á bls. 3 í nefndarálitinu, með leyfi forseta. Þar segir:

„Með því að byggja á umferðarspá Vegagerðarinnar má rökstyðja að Ölfusárbrú og Sundabraut geti verið fjárhagslega sjálfbær verkefni, eða að a.m.k. 50% útgjalda verði fjármögnuð með veggjöldum. Fram hefur komið að ef félagið tekur að sér Fljótagöng þurfi að gjaldfæra árlegt framlag ríkissjóðs sem nemur vöxtum og afborgunum af lánum vegna framkvæmdanna. Gera þarf ráð fyrir því bæði í fjárlögum og samgönguáætlun.“

Virðulegur forseti. Hér ætla ég aðeins að fara yfir þetta. Það stendur að gera þurfi ráð fyrir því í fjárlögum og samgönguáætlun. Það liggur samgönguáætlun hér fyrir þinginu, hún er meira að segja á dagskrá í dag og við höfum verið að ræða hana síðustu daga. Ef ég skil þá umræðu rétt og hef lesið þann texta rétt þá er ekki gert ráð fyrir Fljótagöngum í samgönguáætlun. Þá má spyrja sig: Bíddu, er þá gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun sem liggur líka fyrir þinginu og er líka á dagskrá í dag? Nei, ekki heldur. Má ég þá minna á það, virðulegur forseti, þegar þetta var allt saman kynnt og tilgangurinn með þessu á þessum stóra degi, eins og hæstv. forsætisráðherra sagði í kynningunni: Nú ræsum við vélarnar. Hvaða vélar er verið að ræsa? Hvaða jarðgöng á að byrja að bora? Það hefur verið látið að því liggja að Fjarðarheiðargöngunum hafi verið seinkað, sem er þó búið að hanna og væri hægt að byrja að bora fyrir, vegna þess að Fljótagöngin séu færð ofar í forgangi. Virðulegur forseti. Af því að ég var aðeins að leita á internetinu áðan þá datt ég inn á vefsíðuna trölli.is sem, ef ég skil rétt, er staðbundinn fjölmiðill á Tröllaskaga. Þar segja þau fréttir af því að nú liggi þetta hér fyrir þinginu og að þau bíði spennt eftir að fylgjast með 2. umræðu og samþykkt þess að Fljótagöng séu sett í forgang og hægt sé að hefja framkvæmdir við Fljótagöng, bíddu, árið 2027. Ég ætlaði að segja að það sé á morgun en það er reyndar á næsta ári. En á tímatali jarðgangagerðar og jarðgangahönnunar þá er það á morgun. Það liggur ekkert fyrir. Einhvers staðar hefur verið nefnt að þetta sé 21,5 milljarðar. Sjáum við það í fjármálaáætlun? Sjáum við það í samgönguáætlun? Nei, við sjáum það ekki.

Virðulegur forseti. Í textanum sem ég las áðan var verið að vísa sérstaklega í Ölfusárbrú og Sundabraut. Nú hefur sú sem hér stendur verið mikill talsmaður Sundabrautar í langan tíma og lagt fram þingsályktunartillögu þar að lútandi um einmitt að koma þessu þjóðhagslega hagkvæma og mikilvæga verkefni í framkvæmd sem allra fyrst. Ég held að það sé mikill akkur í því að fá einkaaðila að borðinu með okkur í því að fjármagna það, hanna það, framkvæma það og gefa þeim tækifæri til að rukka veggjöld. Ég hef meira að segja miklar væntingar um það, kannski ekki að hægt verði að byrja á Sundabraut 2027 en fljótlega því að hún hefur aldrei verið komin jafn langt og akkúrat núna. Þó að þetta hafi verið á dagskrá og sé eldra í svæðisskipulagi en sú sem hér stendur, þá erum við raunverulega að sjá að undirbúningur að Sundabraut er kominn það langt að þetta verkefni, sem margir hafa haldið að séu bara einhverjir draumórar, gæti raunverulega farið að raungerast. Það er mikið hagsmunamál fyrir mitt svæði og mitt kjördæmi og ég held fyrir landið allt að Sundabraut verði að veruleika sem allra fyrst þannig að ég fer að hafa smá áhyggjur af því hvort það að pakka því inn í þetta innviðafélag sem er, enn sem komið er, ekki vel skilgreint og ekki vel útfært, geti seinkað framkvæmdum við Sundabraut. Ég er eiginlega handviss um að Sundabraut sé það verkefni sem er hvað mest spennandi fyrir einkaaðila og fjárfesta að koma að framkvæmdum í og taka þátt í. Við vitum að Fljótagöng eru það alla vega ekki. Það er alveg ljóst af lestri þessa texta og allir átta sig á því að ríkið mun þurfa að setja pening í Fljótagöng sem aftur eru ekki tilgreindir í fjármálaáætlun sem liggur fyrir þinginu og ekki tilgreindir í samgönguáætlun. Þá er auðvitað eðlilegt að velta fyrir sér: Bíddu, hvað mun þá gerast næst? Það er algjörlega nauðsynlegt að meiri hlutinn svari því hvernig eigi að ná utan um þetta. Hvernig stendur á því að hér sé búið að lofa einhverju sem heitir Fljótagöng án þess að nokkrir einustu fjármunir séu tilgreindir í því verkefni, hvorki í fjármálaáætlun né í samgönguáætlun?

Virðulegur forseti. Nú er ég meira að segja ekki búin að nefna það sem við munum ræða hér á næstu dögum, að meira að segja er það viðurkennt í meirihlutaáliti hv. fjárlaganefndar um fjármálaáætlunina að þar eru allar forsendur brostnar. Samt eru ekki gerðar breytingar þannig að staðan, með því stóra markmiði ríkisstjórnarinnar að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári, er sú að það er enginn peningur til að fara í þessi göng né nokkur önnur göng. Það er því full ástæða til þess að nefndin komi aftur saman og verði skýrari í nefndaráliti þannig að það liggi ljóst fyrir hvað nákvæmlega verið er að leggja til hérna og hvaða áhrif það hefur á þau loforð sem gefin hafa verið.

Virðulegur forseti. Ég ætla að grípa aðeins niður í nefndarálit minni hlutans. Þar eru notuð orðin að það séu ákveðin hugrenningatengsl við bókhaldsfimleika. Ég nefndi það hér í upphafi að það hefur stundum verið rætt um þetta innviðafélag eins og einhvers konar hókus-pókus því að annars vegar er lofað fullt af framkvæmdum og að hér eigi að fara af stað með alls konar hluti en svo er því ekki fylgt eftir í fjármálaáætlun en einhvern veginn eigi bara að vera til fjármunir til að ráðast í þetta. Ég ítreka aftur það sem ég sagði áðan, að ég skil alveg snjóboltahugmyndafræðina, að það sé hægt að búa til einhvern snjóbolta t.d. með því að ráðast í þá mikilvægu framkvæmd sem ég ræddi áðan, Sundabraut, og að innheimta veggjalda gæti búið til eitthvert fjármagn sem hægt væri að nota í eitthvað áfram. En það er líka alveg skýrt hérna að með þessum hókus-pókus æfingum ætti það ekki að geta gerst varðandi Fljótagöng nema ríkið komi með eitthvert fjármagn á móti sem ekki liggur fyrir.

Virðulegur forseti. Hér hefur verið rætt svolítið um hjáleiðina og meiri hlutinn segir í sínu nefndaráliti, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn leggur áherslu á að samfélagsleg sátt um notkun veggjalda byggist á skýrum og sanngjörnum forsendum.“ — Þessu gæti ég verið sammála. — „Almennt verði miðað við að veggjöld séu fyrst og fremst innheimt vegna nýrra framkvæmda eða verulegra samgöngubóta sem stytta ferðatíma, auka öryggi eða bæta þjónustu notenda með afgerandi hætti.“

Virðulegur forseti. Þá er náttúrlega ágætt að geta þess að í greinargerðinni með frumvarpinu er vissulega opnað á þann möguleika að hægt væri að taka inn þegar byggð samgöngumannvirki og fara að rukka veggjöld af þeim og var Reykjanesbraut sérstaklega nefnd. Margir í stjórnarliðinu urðu sármóðgaðir þegar hv. þm. Vilhjálmur Árnason fór að ræða þetta og það var alveg ljóst að það var ekki mikill vilji, alla vega ekki hjá þingmönnum í Suðurkjördæmi, að fara þessa leið. Ef ég hef skilið málið rétt þá væri meiri hlutinn núna búinn að útiloka að svo gæti orðið. En í tengslum við Sundabraut hefur Kjalarnesið aðeins verið nefnt hér. Öllum má vera ljóst að ef slíkt færi inn í þetta innviðafélag þá er engin hjáleið, en þá datt ég um þessa setningu á bls. 4 í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:

„Sameiginlegur hópur sérfræðinga innviðaráðuneytis og fjármálaráðuneytis hefur lagst yfir hugmyndir þess efnis að almenningssamgöngur geti flokkast sem hjáleið samkvæmt markaðsprófi innviðafélags og litið sérstaklega til reynslu Dana og Norðmanna, en veggjöld eru jafnframt að einhverju leyti nýtt í bæði rekstur og uppbyggingu innviða almenningssamgangna annars staðar á Norðurlöndum.“

Virðulegur forseti. Þá er eðlilegt að ég spyrji: Erum við þá að velta fyrir okkur að setja sem sagt Kjalarnes inn í innviðafélag? Ég myndi alveg fagna því því að ég held að það sé tækifæri til að gera ýmsar vegabætur þar hratt og vel og svo í tengslum við uppbyggingu Sundabrautar. Og að hjáleiðin sé þá almenningssamgöngur? Ég hef ekki heyrt það nefnt hér í andsvörum eða ræðum, virðulegur forseti. Kannski hefur það verið gert en það væri gott ef einhver í meiri hlutanum gæti útskýrt það fyrir mér hvort það sé raunverulega verið að segja það hér að almenningssamgöngur geti þá komið í staðinn vegna þess að við værum með strætó sem myndi keyra þessa leið, að þá væri það raunverulegt val og myndi flokkast sem hjáleið undir þessum skilgreinda lagatexta. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það að ég held að íbúar líti ekki á það sem hjáleið, að það sé hægt að komast hjá því að borga veggjöld út af því að maður geti valið að fara í strætó.

Virðulegur forseti. Svo er aðeins farið yfir stjörnumerkingarnar og ég ímynda mér að þeir sem eru þarna úti og kunna að vera að fylgjast með þessari umræðu viti ekkert hvað átt er við. En þá er verið að meina að ef viðkomandi framkvæmd er stjörnumerkt í samgönguáætlun okkar væri með því verið að beina því til þessa félags að þeir gætu skoðað að fara í slíkar framkvæmdir. En aftur, ef ég skil þetta rétt, þá er líka mikilvægt að þetta félag sé sjálfstætt þannig að það tæki slíkar ákvarðanir sjálft þannig að með því að stjörnumerkja værum við að opna á þann möguleika. Gott og gilt að einhverju leyti. Hér hefur samt verið rætt töluvert í þessu samhengi um það innviðafélag sem við erum búin að setja á laggirnar og er kannski að stíga sín fyrstu skref sem eru Betri samgöngur. Margir hafa gagnrýnt það að umtalsverðir ríkisfjármunir séu að fara í það félag til að standa undir innviðauppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu og að það sé þá ekki innan samgönguáætlunar, þ.e. að hver og einn þingmaður hér í salnum geti ekki haft beinharðar skoðanir á því og í rauninni lagt fram breytingartillögur eða lagt fram aðra forgangsröðun en þar er undir. Ég skil þessa gagnrýni en ég man líka þegar verið var að koma Betri samgöngum á laggirnar og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þá var þetta auðvitað einn af hlutunum til að ná þessu fram, að fyrir lá forgangsröðun og samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um að það væri forgangsröðunin og það væri þá verið að stýra fjármunum inn í það. Virðulegur forseti. Í ljósi þess að ég heyri það að margir kollegar hafa ákveðnar efasemdir um það og eru að fara fram á að fá meiri aðkomu að þeim ákvörðunum sem teknar eru þar inni. Ég sé það ekki alveg í hendi en ég sé það vel að það er hægt að sinna upplýsingaskyldunni betur og skýrar. Þá veit ég ekki hversu langt við getum farið í því að vera með innviðafélag sem getur tekið framkvæmdir yfir landið allt sem væru í raun undir sömu formerkjum og Betri samgöngur nema þó það að þau mega velja sjálf hvort þau taki til framkvæmda það sem er stjörnumerkt í samgönguáætlun eða ekki. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt að skoða vel hversu ríkt samstarf er á milli þessa félags og þingsins, þ.e. hvernig kjörnir fulltrúar geti haft áhrif og aðkomu að þessu.

Virðulegur forseti. Hér eru Færeyjar nefndar sérstaklega í nefndaráliti meiri hlutans. Ég hef nú komið þangað allmörgum sinnum og fengið kynningu á því sem þeir hafa gert og jú, það er rétt að þeir horfðu til Hvalfjarðarganga á Íslandi á sínum tíma og svo hafa þeir farið áhugaverðar leiðir til að framkvæma sín jarðgöng, en það eru þó alltaf bara ein göng í hverju tilfelli fyrir sig. Þar af leiðandi hefur þingið haft fullt tækifæri til að ræða það og hafa á því skoðun og það sést kannski best á því að meiri hlutinn sprakk nú bara í Færeyjum ekki alls fyrir löngu vegna þess að það náðist ekki saman um það á þinginu hvort það ætti að fara í framkvæmd á Suðureyjargöngum eða ekki.

Virðulegur forseti. Tíminn er útrunninn en ég er alls ekki búin að fara í gegnum alla þá punkta sem ég hafði nóterað hjá mér þannig að ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.