innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ágætu yfirferð. Ég get tekið undir margt sem kom fram í hennar máli enda skynjaði ég a.m.k. ræðuna með þeim hætti að ansi margt í henni endurspeglaði það sem kom fram í minni eigin. Því var kannski ekki skrýtið að ég væri hrifinn af hluta af henni.
Mig langar að spyrja hv. þingmann út í það sem kemur fram í nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Engin svör hafa fengist um það hvers vegna það þykir hagkvæmt að reka þrjár Vegagerðir á Íslandi.
Minni hlutinn minnir á að samþykkt laganna miðar að því að innviðafélagið verði félag í C-hluta en forsenda fyrir því að það takist er að afskipti jafnt ráðherra sem Alþingis verði engin, líkt og sjá má í umfjöllun og breytingartillögum meiri hlutans. Með öðrum orðum munu hvorki þingmenn né kjósendur hafa nokkuð um það að segja hvaða framkvæmdir félagið ræðst í. Fyrirætlanir meiri hlutans um að stjörnumerkja verkefni og fjármagn í samgöngu- og fjármálaáætlunum framtíðarinnar verða því í besta falli skildar sem tilmæli til félagsins sem því verður í sjálfsvald sett að taka mark á eður ei. Eftir stofnun félagsins verður staðan því sú að þrír aðilar sinna vegagerð og þjónustu við vegi landsins en aðeins einn þeirra lýtur boðvaldi lýðræðislega kjörinna fulltrúa. Í stað þess að geta sagt skoðun sína á ástandi samgöngumála í kosningum á fjögurra ára fresti verður stór hluti verkefnanna utan þeirra áhrifasviðs og allt að því á sjálfstýringu.“
Herra forseti. Þarna kemur í umsögn minni hlutans fram hluti af því sem ég var að viðra áhyggjur af í ræðu minni áðan. Mér fannst hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir taka að nokkru leyti undir þetta og spyr því hv. þingmann hvort ég hafi skilið það rétt að þetta sé meðal þess sem hv. þingmaður hefur áhyggjur af.