innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég get tekið undir það að þetta er eitt af því sem ég hef áhyggjur af og er útlistað ágætlega í nefndaráliti minni hlutans. Mér finnst líka eins og meiri hlutinn í nefndinni reyni að nálgast þetta í sínu nefndaráliti og hann varpar upp því að nauðsynlegt sé að sinna upplýsingagjöf, að hún sé skýr og annað. Ég var svo lánsöm að sitja fund nokkurra Sjálfstæðismanna þar sem einn af þeim sem hugsuðu þetta upp innan ráðuneytisins kom og útskýrði svolítið fyrir okkur hvað þarna um ræðir. Ég held að öllum kunni að vera ljóst, og ég veit að Isavia hefur verið notað sem dæmi um það hvernig væri hægt að gera þetta, að það sé algerlega nauðsynlegt að það sé miklu meiri samgangur og samtal milli þessa félags og þingsins og þingnefnda heldur en við til að mynda Isavia. Nú er það t.d. mál sem við höfum reglulega rætt hér, að það sé svolítið á sjálfstýringu.
Sjálf er ég formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem hv. þingmaður situr í. Þar erum við með frumkvæðismál um ohf. sem kom meira að segja fram að ósk eins úr meiri hlutanum. Auðvitað vakna svona spurningar upp. Ég skil mjög þessar áhyggjur og deili þeim. Ég þekki svolítið upphafsskrefið varðandi samgöngusáttmálann, það sem varð svo að Betri samgöngum, og man að þetta var umræðan þegar við settum þau lög í gegnum þingið. Fólk hafði áhyggjur af þessu. Ég sá þá ekki annan kost en að keyra þetta þannig í ljósi samkomulags og vilja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en á sama tíma er mikilvægt að upplýsa um þetta. Ég óttast það svolítið að við séum mögulega að fara aðeins of hratt í því að búa til enn annað innviðafélag. Þá er það ljóst sem þarna kemur fram, að þá sé mögulega bara einn þriðji eða eitthvað undir fyrir þennan sal, þjóðkjörna fulltrúa, að fjalla um. Það er auðvitað eitthvað ankannalegt við það. Þess vegna vísaði ég í umræðunni til samgönguáætlunar og mikilvægi þess að vinna þá alla vega með sveitarfélögum og staðbundnum stjórnvöldum, þeim sem hafa verið kjörnir þar, og vinna að forgangsröðun þar. Ég sæi frekar fyrir mér, af því að við gerðum innviðafélag á höfuðborgarsvæðinu og ég veit að kallað hefur verið eftir því á Vestfjörðum, að við sæjum landið í einhverjum pörtum þannig að hægt væri að ná saman um einhver ákveðin svæði.