157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:09]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Í þeim kemur fram staðfesting á því sem ég hafði á tilfinningunni að hv. þingmaður hefði í raun sagt í ræðunni og deili ég áhyggjum hv. þingmanns hvað það varðar. Af því að hv. þingmaður nefndi Isavia þá held ég að enginn hafi áhuga á öðru svoleiðis fyrirbæri, þ.e. einhverju sem engin leið er að hafa neina pólitíska aðkomu að. Þessi salur, þrátt fyrir að vera stundum umdeildur, er þó í það minnsta kjörinn, hann er fulltrúi fólksins í landinu. Þess vegna óttast ég talsvert að taka þetta úr sambandi.

En mig langar líka að vita hvað hv. þingmanni þykir um eitt af því að ég held að hv. þingmaður hafi ekki farið þangað í ræðunni sinni. Ég hef aðeins verið að reyna að draga fram upplýsingar um að það þýði í raun og veru auknar álögur á fólk í landinu verði sú leið farin sem skrifuð er í frumvarpið. Við, þessi salur, erum nýbúin að samþykkja kílómetragjaldið, illu heilli, til að geta farið í átak í uppbyggingu vegamannvirkja. Hækkun á veiðigjöldum, vörugjöld o.s.frv.; allt var það gert svo að við gætum hraðað uppbyggingu í samgöngukerfinu. Núna ætlum við að búa til félag sem rukkar svo ofan á þetta allt saman líka. Hvora leiðina eigum við að fara? Við förum ekki báðar leiðirnar af því að á (Forseti hringir.) einhverjum tímapunkti þrýtur greiðsluviljann.