innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið síðara sinni. Ég hef greinilega ekki verið alveg nógu skýr fyrst hv. þingmaður þurfti að lesa í svörin um það sem ég sagði raunverulega í ræðunni minni. Ég held þó að hv. þingmaður hafi náð utan um það og ég hef kannski á endanum náð að gera mig nægilega skýra. Það sem hv. þingmaður kom inn á í síðara andsvari er líka lykilatriði og mun skipta okkur ofboðslega miklu máli. Nú man ég ekki hvort það var í báðum nefndarálitum en alla vega var í nefndaráliti minni hlutans fjallað sérstaklega um það sem ég ræddi líka varðandi samgönguáætlun og samgöngusáttmálann, að þetta er auðvitað bagalegt. Þegar fyrstu hugmyndir komu fram að svona innviðafélögum eins og t.d. Betri samgöngum og einhverju sem hét flýtigjöld var kílómetragjald ekki komið. Það er auðvitað ekki hægt að koma á kílómetragjaldi og ætla svo að koma á gjaldi yfir hvern og einn veg fyrir sig, göng eða brú eða hvað það er, og svo jafnvel einhverju flýtigjaldi. Það er alveg ljóst, og það í ofanálag eftir að við höfum hækkað veiðigjöld umtalsvert. Hverju var aftur lofað þegar þau voru hækkuð? Man það einhver? Jú, þau áttu að skila sér heim í hérað. Ég er nýkominn af Austurlandi og frá Vestmannaeyjum. Þar er fólk auðvitað brjálað af því að þar lagðist þessi skattur á fyrirtækin og það sér engan pening í samgönguáætlun eða fjármálaáætlun.