157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:13]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Á laugardaginn, þegar umræðan hófst, hlustaði ég á alla umræðuna og skil vel orðaskipti hv. þingmanna Þorgríms Sigmundssonar og Bryndísar Haraldsdóttur um það hvað menn eru að reyna að skilja. Eftir að hafa hlustað á umræðuna á laugardaginn, hlustað á þrjá stjórnarþingmenn koma upp í umræðunni til að halda ræður, var ég eitt stórt spurningarmerki. Ég held að ég hafi skilið nokkurn veginn ræðu hv. þingmanns og framsögumanns málsins, Dags B. Eggertssonar, en það sem á eftir kom var tiltölulega óskiljanlegt. Ég ætlaði að koma inn á það í þessu andsvari hvernig þetta félag er byggt upp og sömuleiðis það sem snýr að þessum C-hluta og jú, tengingu við Isavia. Síðan eru hlutar sem snúa að verkefnum sem eru minna markaðslega viðurkennd eða bara óarðbærar framkvæmdir sem færu þá í A3. Þá komum við inn á tenginguna við kjörna fulltrúa. Ef ég skil þetta rétt koma verkefni sem flokkast í A3 til kasta þingsins. Framkvæmdarvaldið kemur að verkefninu og þingið sömuleiðis til þess að samþykkja fjárveitingu til verkefnisins. Hefur hv. þingmaður sama skilning á þessu verkefni, þ.e. á muninum á C-hluta félagi og hlutafélagi undir A3?