innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að mér fannst eins og búið væri að telja mér trú um að þetta gæti fallið undir C-hlutann að því gefnu að það væri gjaldfært frá ríkinu inn í félagið. Þetta eru kannski frekar upplýsingar sem ég fékk og umræða sem átti sér stað á þessum kynningarfundi. Ég er ekki alveg sannfærð um að nefndarálit meiri hlutans og það sem kom fram á þessum kynningarfundi tali saman, eiginlega er ég sannfærð um að svo sé ekki. Það lítur út fyrir að annar hvor aðilinn sé að misskilja eitthvað, annaðhvort fulltrúinn frá ráðuneytinu sem búið er að vinna að þessu verkefni eða meiri hluti hv. fjárlaganefndar. Þess vegna benti ég á að stóra málið er auðvitað að í framkvæmdum sem ekki eru fjárhagslega arðbærar þannig að veggjöld ein og sér gætu staðið undir þeim þarf að koma til ríkisfé. Það er alveg ljóst og hefði öllum átt að vera það ljóst frá upphafi, en í fjármálaáætlun er enginn peningur í þetta. Það var kannski það sem ég var að fara yfir í ræðunni minni, það er ekkert um þetta í fjármálaáætlun. Mér finnst enn þá óljóst hvort þetta sé frekar í A-hluta en C-hluta. Stóra atriðið er það að hér er búið að lofa íbúum göngum, búið að lofa þjóðinni því að það eigi að ræsa vélarnar og byrja að bora. Eins og málið lítur út núna, og ég sé ekki einu sinni að meiri hlutinn reyni að verja það, verður ekkert borað hér á næstu árum. Það er ekkert fjármagn til staðar í það verkefni.