innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og vænti þess að við fáum ákveðna innkomu frá hv. þm. Degi B. Eggertssyni, framsögumanni málsins. Hann er með okkur í salnum og ég reikna með því að hann leiði okkur eitthvað áfram í gegnum þessa umræðu. Í nefndaráliti meiri hlutans, af því að hv. þingmaður kom inn á Fljótagöng, get ég ekki betur séð en að verið sé að tala um tvenns lags leið. Seinni leiðin er sennilega sú sem ég var að ræða í fyrra andsvari og snýr að því að ríkið þurfi að koma til innviðafélagsins með bein fjárframlög. Hin leiðin er að ríkið leggi til vexti og afborganir af þeim lánum sem um er að ræða og þá væntanlega erum við að tala um hina svokölluðu færeysku leið, hef ég grun um, þar sem ríkið bætir innviðafélaginu það upp að umferð í gegnum göngin sé ekki nægjanleg. (Forseti hringir.) Ég get skilið það þannig en hvað segir hv. þingmaður?