157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:19]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni. Ég greip niður í bls. 3 í nefndarálitinu þar sem segir, með leyfi forseta:

„Með því að byggja á umferðarspá Vegagerðarinnar má rökstyðja að Ölfusárbrú og Sundabraut geti verið fjárhagslega sjálfbær verkefni …“ — og þar af leiðandi fjármögnuð með veggjöldum. „Fram hefur komið að ef félagið tekur að sér Fljótagöng þurfi að gjaldfæra árlegt framlag ríkissjóðs sem nemur vöxtum og afborgunum af lánum vegna framkvæmdanna. Gera þarf ráð fyrir því bæði í fjárlögum og samgönguáætlun“ — sem ekki er gert.

Svo segir áfram, með leyfi forseta:

„Greina þarf ítarlega hvort slíkt fyrirkomulag komi niður á fjármögnunarkjörum innviðafélags, ekki aðeins í tengslum við viðkomandi verkefni heldur hugsanlega til framtíðar. Ef gerð Fljótaganga fellur ekki að verkefnum innviðafélagsins leggur meiri hlutinn áherslu á að þau verði fjármögnuð með hefðbundnum hætti með sérstakri fjármögnun sem sjái stað í fjármálaáætlun og samgönguáætlun.“

Það skiptir ekki máli hvor niðurstaðan yrði ofan á þó að betur þyrfti að greina þetta. Í öllu falli þarf fjármagn að vera til staðar og svo er ekki í dag.