innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka prýðilega ræðu og vildi koma hér upp til að leitast við að skýra að það er ekki óvissa um hvort ráðist verði í Fljótagöng ef samgönguáætlun verður samþykkt svona. Það liggur hins vegar ekki fyrir á þessu stigi hvort Fljótagöng verði hluti af verkefnum innviðafélagsins. Frumvarpið gerir ráð fyrir því raunar en það er rétt athugað hjá þingmanninum að ef svo væri þá liggur fyrir að umferðin er ekki meiri en svo að þá þyrfti að koma fram eiginfjárframlag inn í Fljótagangaverkefnið. Þá vaknar spurningin hvort það séu alveg nýir peningar eða inni á fjármálaáætlun og fjárlögum eða hvort það komi úr ramma samgönguáætlunar. Það veltur á því hversu umfangsmikil verkefni af samgönguáætlun sem eru fjármögnuð þar núna munu flytjast yfir til innviðafélagsins. Ef þau eru verulega umfangsmikil getur verið að svigrúmið dugi fyrir Fljótagöngum og öðrum verkefnum innan ramma samgönguáætlunar. Ef ekki þá þyrfti að koma til sérstök fjármögnun. Þetta er reynt að skýra með almennum orðum í nefndaráliti meiri hluta en þetta er smá flókið samspil sem verður samt býsna einfalt um leið og við förum að labba okkur í gegnum einstök skref í þessu. Þannig að nr. 1: Það er engin óvissa um það að Fljótagöng eru að fara af stað. En nr. 2: Það liggur ekki fyrir fyrr en innviðafélagið er búið að meta hvort Fljótagöng verði þar inni. Það er gert ráð fyrir því þó en þá þarf eiginfjárframlag með þeim sem gæti komið af ramma samgönguáætlunar eða með sérstakri fjárveitingu.