innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að við séum þá alla vega klárlega sammála um að það þarf pening í Fljótagöng, það þarf pening frá ríkinu í Fljótagöng. Þau eru ekki tilgreind sérstaklega í fjármálaáætlun og hv. þingmaður velti því þá upp hér að mögulega þurfi ekki nýja fjármuni heldur liggi þeir fyrir í samgönguáætlun eins og hún liggur fyrir þinginu í dag, og þá fjármálaáætlun sem hv. þingmaður var að afgreiða út úr sinni nefnd hérna bara á dögunum. Það er fjármálaáætlun þar sem minna er lagt til samgöngumála yfir þetta tímabil en verið hefur, það er dregið úr fjárframlögum til samgöngumála. Þannig að ég spyr hv. þingmann: Bíddu, hvernig gengur þetta eftir? Hvaða verkefni er þá verið að tala um að þurfi ekki ríkisfé samkvæmt samgönguáætluninni og hægt væri að nota þá peninga í Fljótagöng? Og heldur hv. þingmaður að það sé í alvöru hægt að standa við þær væntingar og loforð sem búið er að gefa íbúum um að byrjað verði að framkvæma Fljótagöng árið 2027?