innviðafélag.
Virðulegur forseti. Samgönguáætlun og fjármálaáætlun kallast alfarið á núna, ekki jarðgangahlutinn, en þessi hefðbundna samgönguáætlun. Ég var að reyna að skýra að þetta veltur á því hversu umfangsmikil verkefni sem núna eru fjármögnuð inn á samgönguáætlun færast yfir til innviðafélags og verða þá fjármögnuð með veggjöldum. Þarna eru mörg ef og því getum við ekki svarað fyrr en innviðafélagið er komið á legg og fer áfram. Það er mikið kapp hjá þessari ríkisstjórn og ríkisstjórnarmeirihlutanum að halda dampi og standa við stóru orðin. Ég er ekki inni í einstaka krókum og kimum varðandi tímaáætlanir Fljótaganga en þetta er yfirlýsingin, að fara í gang á næsta ári, og ég held að allir muni leggja sig fram um að það standist.