innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og verð að segja að þetta er enn þá óskýrt. Þegar hv. þingmaður segir að samgönguáætlun og fjármálaáætlun kallist á, og hér hefur því verið haldið fram að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð, þá er það ekki svo. Það er sagt að það gerist með innviðafélagi og hér er svarið: Já, það er gert ráð fyrir að þetta sé í innviðafélagi en það er samt ekki fjármagnað með fjármálaáætlun út af því að mögulega færist eitthvað annað úr samgönguáætlun yfir í innviðafélagið.
Virðulegur forseti. Ég skil þetta ekki að fullu, ég ætla nú ekki að segja að ég sé greindasta manneskjan hérna inni. En hvernig á fólk þarna úti að skilja þetta? Og að göng sem ekki er búið að hanna eða rannsaka að fullu, að það verði hægt að byrja að bora á næsta ári?
Virðulegur forseti. Þetta er bara því miður ekki trúverðugt. En að því sögðu þá vil ég líka ítreka það sem ég sagði hér í upphafi að mér finnst hugmyndin um innviðafélag góð. Mér finnst flestir sem hafa komið hingað upp hafa lýst því. Þess vegna skil ég ekki af hverju meiri hlutinn leggur sig ekki meira fram í hv. fjárlaganefnd um að ná utan um verkefnið (Forseti hringir.) þannig að við getum talað skýrt og verið sammála um það sem skiptir máli fyrir fólk hérna úti, um hvenær og hvernig þetta á að hefjast og hvert umfangið á að vera. Því miður er staðan sú í dag að það er það ekki.