157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:27]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Ég vil bara þakka fyrir þessa umræðu sem hefur verið í þessu máli, bæði á laugardag og í dag. Ég vona að sem flestir séu að fylgjast með í sjónvarpinu af því að það hefur verið upplýsandi, held ég, fyrir marga. Ég sit ekki í nefndinni þannig að ég gat kynnt mér umsagnir og skoðað málið aðeins utan frá og ætla að fjalla aðeins um það í þessari ræðu minni og almennt séð er auðvelt að vera sammála markmiðum þessa frumvarps. Ég held að flestir séu það í salnum. Við viljum öll betri vegi, hraðari uppbyggingu, að samgöngumannvirkin okkar séu í góðu lagi, spari tíma og séu örugg. Það er erfitt að vera ósammála því sem stendur í 2. gr. frumvarpsins, um að tryggja fjármögnun og hraðari framvindu mikilvægra samgönguverkefna. Þetta er eitthvað sem alla dreymir um, hvort sem þeir eru stjórnmálamenn eða almenningur í landinu. Markmiðið er gott en spurningin er: Eru þetta bara orð á blaði? Er verið að keyra upp væntingar? Eru þetta umbúðir, einhver froða eða er eitthvert innihald í þessu? Og þar sem ég hef ekki setið í nefndinni og ekki hlustað á gesti sem hafa komið fyrir nefndina þá er ég kannski ekki eins vel í stakk búinn og allir þeir sem hafa setið í nefndinni. En ég hef gert mitt besta í því að lesa það sem hefur verið skrifað og fylgst með umræðunni og það er oft ágætt að það sé þannig.

Það fyrsta sem vekur athygli er að umræðan um frumvarpið hefur tekið miklum breytingum frá því að það var lagt fram, frumvarpið sjálft. Það getur alveg verið gott. Það getur verið gott að frumvörp sem koma frá ráðuneytunum, og oft bara æskilegt, taki breytingum í meðförum nefnda og þings. Það má kannski hrósa nefndinni fyrir það því að ríkisstjórninni hefur verið tamt að keyra hér mál í gegn eins og þingið sé hálfgerður stimpilpúði fyrir ríkisstjórnina. Breytingar eru ekki alltaf af hinu vonda í þessum málum og þær eiga að vera af hinu góða; að þingið skoði hvað má betur fara og saman stöndum við að breytingum.

Fyrst var talið, og sjálfur taldi ég það, að hér væri einfaldlega verið að stofna félag um að byggja ákveðin mannvirki, innheimta gjald af þeim sem nýttu viðkomandi mannvirki. Þeir borga sem nota taktíkin. Það er kannski ekkert skrýtið að það sé komið með það því að mörgu leyti er það bara sanngjörn leið þó að það geti verið annmarkar á henni. Ég átti hér samtal við hv. þm. Bergþór Ólason, að mig minnir, um þetta þegar við ræddum samgönguáætlun. En eftir því sem málið hefur skýrst virðast markmiðin vera töluvert víðtækari. Það er ekki bara þetta, þeir borga sem nota, menn kannast kannski við þetta úr Hvalfjarðargöngunum, það var tekið lán og svo var lánið greitt niður með veggjöldum og það gekk vel því að auðvitað fara margir um þau göng og eru mjög arðbær göng. Í raun virðist hugmyndin vera sú að innviðafélagið byggi upp eigin tekjustofn, safni eigin fé og nýti síðan til frekari framkvæmda. Það er alla vega eins og ég skil þetta. Það er önnur nálgun heldur en ég hafði í upphafi og önnur pæling. Þá erum við ekki lengur að tala eingöngu um gjald fyrir tiltekna þjónustu heldur kerfi þar sem tekjur af einu mannvirki geta skapað svigrúm til að byggja annað, þannig að tekjur geta færst á milli samgöngumannvirkja. Við getum ímyndað okkur bara að ef það hefði verið haldið áfram að rukka fyrir Hvalfjarðargöngin þá sæti félagið, mig minnir að það hafi heitið Spölur, félagið í kringum Hvalfjarðargöngin, á digrum sjóðum í dag og gæti notað til að fara í aðrar framkvæmdir. En þá geta menn spurt um sanngirnina í því að Vestlendingar eða Akranesbúar og þeir sem sækja vinnu þarna upp í álver og á Grundartanga, eðlilega nýta þeir göngin meira en aðrir — hvort þeir eigi þá að greiða mögulega fyrir samgöngubætur annars staðar á landinu. Þetta er svona pólitísk umræða.

Ég velti því fyrir mér hvort almenningur átti sig á þessari stöðu. Það er mikilvægt fyrir lýðræðið í landinu að sem flestir séu meðvitaðir um það hvað felst í frumvörpum þeirrar ríkisstjórnar sem er við völd hvert sinn. Auðvitað erum við fulltrúarnir hér á þinginu, fulltrúar almennings og við veitum aðhald en það er gott þegar almenningur gerir það líka, hver sem er við völd, breytir engu hver það er. En veit almenningur þetta allt saman, hvernig þetta kerfi mun virka og hvernig framkvæmdin verður? Í greinargerð frumvarpsins er lögð mikil áhersla á að félagið verði fjárhagslega sjálfbært og geti fjármagnað framkvæmdir með tekjum af veggjöldum. Það er gott að félagið, hvaða félag sem er, sé fjárhagslega sjálfbært því fjárhagslega ósjálfbær félög fara einfaldlega á hausinn, sama í hvaða viðskiptum sem þau eru. En ef félagið á að vera sjálfbært þarf að skila umframtekjum og það þarf að mynda eigið fé og það þarf að geta tekið lán á grundvelli framtíðartekna. Þetta er svona viðskiptahugmyndin í grunninn. Þú færð ekki lán nema geta sýnt fram á að það komi tekjur af þessari viðskiptahugmynd sem er þá einhvers konar samgöngubót. Þá er þetta orðin allt önnur umræða en hefðbundið þjónustugjald.

Það er líka athyglisvert að nefndarumræðan virðist að hluta til hafa byggst á öðrum skilningi en þeim sem síðar hefur komið fram. Það er kannski eðlilegt því að mál þróast í meðförum nefnda. Auðvitað eru nefndarmenn með ákveðna reynslu en þeir eru líka bara venjulegt fólk sem hefur þó meiri tíma en almenningur til að sökkva sér ofan í málin og þetta mál virðist hafa þroskast og gerjast vel í nefndinni. Það kemur beinlínis fram í þeim gögnum sem við höfum fengið að margir hafa litið svo á að hér væri um hefðbundna gjaldtöku að ræða en síðan hafi skýrst að markmiðið væri víðtækara.

Herra forseti. Ég held að eitt stærsta álitaefnið snúist um gjaldtökuna sjálfa. Í 7. gr. frumvarpsins er einfaldlega vísað til vegalaga um heimild félagsins til að innheimta veggjöld. En þegar farið er dýpra í málið vakna spurningar um hvort heimildirnar séu nægilega skýrar. Í greinargerðinni er lögð áhersla á að veggjöldin eigi að standa undir byggingu, rekstri, viðhaldi og þróun og eðlilegri ávöxtun fjárfestinga. Ef það er áætlunin þarf löggjafinn að vera mjög skýr, þ.e. þingið. Það á ekki að setja lög sem byggjast á því að menn vonist eftir því að einhver túlkun gangi upp síðar. Það þarf að segja skýrt hvað megi innheimta, í hvaða tilgangi og innan hvaða marka. Það þarf að vera á hreinu. Það eru vinnubrögð sem ég held að þingið vilji almennt stunda.

Frú forseti. Ég kallaði mögulega forseta áðan herra forseta, ég áttaði mig ekki á því að hér höfðu orðið forsetaskipti, afsakið.

Frú forseti. Annað álitaefni er tengsl félagsins við Alþingi. Við eigum að hafa það í huga að hér er verið að stofna félag sem á að annast framkvæmdir upp á tugi, jafnvel hundruð milljarða og seinni talan er líklegast nær lagi. Í greinargerðinni er lögð áhersla á að félagið þurfi að hafa verulegt sjálfstæði til ákvarðanatöku, það þurfi að starfa á markaðsforsendum og geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir um gjaldskrár og verkefni. Almennt í rekstri félaga og fyrirtækja eru þetta bara ágætisrök. En þar sem þetta er svona hálfopinbert félag, hvert verður þá hlutverk Alþingis í þessu öllu saman? Við vitum alveg hver pólitíkin er gagnvart alls konar samgöngumannvirkjum. Það getur verið erfiðara fyrir mannvirki sem eru minna arðsöm að komast á dagskrá, það er nokkuð ljóst.

Hversu mikil áhrif mun þingið hafa þegar búið er að koma verkefnunum inn í félagið og hversu mikið vald flyst í raun frá Alþingi til stjórnar félagsins? Ég sjálfur er ekki viss um það og það hefði verið gott að fá svör við því. Mögulega kemur hérna einhver stjórnarþingmaður í andsvör við mig en þar sem ég sé ekki einn einasta stjórnarþingmann í salnum núna þá er það mögulega ólíklegt. Hvernig verður tryggt að stórar ákvarðanir um eignir ríkisins og samgönguinnviði verði áfram teknar með fullri aðkomu þingsins? Þetta eru stórar spurningar sem skipta máli hvað lýðræðislegt aðhald varðar.

Frú forseti. Hvaða verkefni munu rata inn í félagið? Ég spyr sem svona, ég ætla ekki að segja leikmaður, ég er atvinnumaður í pólitík en sem nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd: Hvaða verkefni fara inn í félagið og hver ekki? Er það gott fyrir verkefnið að fara inn í félagið eða er það slæmt? Í umræðunni hafa verið nefnd verkefni eins og Fljótagöng og ég held að flestir eða bara allir á landinu vilji sjá þau raungerast. En í greinargerð frumvarpsins er mjög skýrt sagt að félagið þurfi að standast svokallað markaðspróf og afla meiri hluta tekna sinna á markaðsforsendum. Það þýðir að Fljótagöng þurfa að vera arðbær, reksturinn á þeim, og þau þurfa að geta staðið undir sér með veggjöldum. Þetta stendur alla vega í textanum. Þá spyr maður sig líka: Hversu mörg verkefni sem mest er talað um munu standast þessar forsendur? Hversu mörg þeirra eru arðbær? Er verið að kasta upp hér einhverjum boltum, lyfta einhverjum væntingum? Og hvað svo? Eru þetta svona skammtímakeilur sem verið er að fella, umbúðir, lítið innihald? Vonandi ekki.

Hve mörg þessara verkefna munu þurfa ríkisframlög þrátt fyrir stofnun félagsins? Í frumvarpinu sjálfu er beinlínis gert ráð fyrir því að ríkið geti þurft að leggja fjárframlög til svo verkefnið teljist fjárhagslega sjálfbært. Svo veltir maður fyrir sér: Hver verður línan í þessu? Hvenær kemur ríkið að verkefninu og hvenær ekki? Svo sér maður setningar í frumvarpinu, með leyfi, frú forseti, um að félagið þurfi að standast svokallað markaðspróf og afla meiri hluta tekna sinna á markaðsforsendum. Sú setning er í raun í andstöðu við næstu setningu sem ég les, frú forseti, beint upp úr frumvarpinu, að ríkið geti þurft að leggja til fjárframlög til að „verkefni teljist fjárhagslega sjálfbært“. Hægri höndin segir að markaðurinn verði að koma að, þetta þurfi að vera arðbært verkefni sem geti staðið undir sjálfu sér en svo með vinstri er talað um að ríkið þurfi að leggja til fjármagn til að félagið verði sjálfbært. Hér fer ekki saman orð og æði eða hljóð og mynd.

Maður hefur í umræðunni fylgst með því, verandi ekki í nefndinni, að þetta innviðafélag sé eins og hálfgerð töfralausn. Hvernig á að gera þetta? Þá kemur orðið „innviðafélag“, það er eins og innviðafélag sé einhvers konar peningaprentunarvél sem geti bara gert okkur kleift að byggja upp allt strax og gera allt strax. Þetta er hættuleg umræða. Hún er hættuleg vegna þess að væntingar eru keyrðar upp. Almenningur, réttilega, missir trú á þinginu og traust minnkar. Hlutverk okkar þingmanna og hlutverk löggjafarvaldsins er að vera jarðtengd. Þá er ég ekki að segja að þetta séu ekki allt jarðtengdar hugmyndir en það hljómar ýmislegt hér ekki þannig og svör stjórnarmeirihlutans eru vægast sagt þokukennd. Það er þannig í allri umræðu að ef mörkin eru alltaf að færast til og frá og þú veist aldrei nákvæmlega hvað er verið að segja, þá er erfitt að festa fingur á það þannig að það sé hægt að gagnrýna mjög hlutlægt. Það er ekki góð umræða, alls ekki. Vonandi fáum við hér í umræðunni að heyra í fleiri stjórnarþingmönnum sem útskýra þetta mál betur. Það er ótækt að stjórnarandstaðan sé ein í því. Hún er kannski ekki alveg ein en hún er töluvert mikið ein í því að ræða þessi mál.

Ég talaði um væntingar og ég held að það sé verið að búa til of miklar væntingar. Það er talað um fullfjármagnaða samgönguáætlun, fullfjármagnaða. Þetta hljómar eins og við eigum bara inni í seðlabanka hundruð milljarða í alla þá áætlun og svo innviðafélagið. Svo á að færa þarna á milli, úr samgönguáætlun yfir í innviðafélagið. Hvaða reglur, hvaða leikreglur eru þar er ekki alveg á hreinu. Ég hef þá tilfinningu að það sé búið að búa til einhverja heilaga tvennu sem kippir samgöngum á Íslandi í lag einn, tveir og þrír. Göng um allt land og allir fá allt. Samgönguáætlun og innviðafélag: Hin heilaga tvenna.

Þetta er ákveðið pólitískt kjarnamál sem mér finnst lykta af umbúðum. Við vitum öll að á endanum þegar pakkinn er opnaður þá er líklegast, eins og í Evrópusambandsumræðunni, ekkert í pakkanum. Hann er tómur. Því miður dregur þetta aðeins dám af því að það er ákveðin tilhneiging hjá ríkisstjórninni að gera þetta, keyra málin upp á einhverjum blaðamannafundum og flugeldasýningum og svo bara heyrist ekkert meira af málunum. Þetta verður ekki alveg þannig, þetta verður ekki eins og í upphafi árs 2025 þegar menn blésu til mikilla fagnaðarláta, fólk átti að koma með hagræðingartillögur og mig minnir að á annað þúsund tillögur hafi komið en síðan endaði með því að einhverjar örfáar voru lagðar fram. Þær voru allar þannig, held ég, að hægt var að tengja þær við fyrri mál sem höfðu dúkkað upp en verið hafnað í þinginu á misgáfulegum forsendum. Vonandi er þetta innviðafélag ekki svona mál. En það er bara almennt þannig, við þekkjum það öll með börn, unglinga og fullorðna, að ef væntingar eru keyrðar upp þá verða vonbrigðin enn þá meiri ef ekki er hægt að standa undir þessum væntingum. Trúverðugleiki þingsins minnkar.

Frú forseti. Ég vil líka nefna atriði sem mér finnst kannski ekki hafa fengið nægilegt kastljós í þessari umræðu. Ég er sjálfur kannski ekki bestur til að átta mig á því eða skilja, en það er opnað á að skilgreina samgöngukerfið sem eina heild þar sem gjaldtaka getur tekið mið af heildarkostnaði allra mannvirkja innan kerfisins. Það er ekkert ósvipað því sem ég var að nefna, við erum með eitthvert kerfi þar sem eru kannski, segjum tvö göng og vegbætur þar og brú þarna og þá getur gjaldtaka á einum stað borgað fyrir uppbyggingu annars staðar. Þá er náttúrlega langlíklegast að sá staður þar sem arðsemin er mest og umferðin er mest muni borga upp þá þar sem arðsemin er minni.

Tíminn líður hratt hér, ég er kannski rétt hálfnaður með mína ræðu. Þegar þetta er sagt þá erum við ekki lengur að tala um að notandi greiði eingöngu, þ.e. borgi fyrir það mannvirki sem hann notar, heldur erum við farin að tala um að notkun eins hluta kerfisins geti fjármagnað annan hluta. Þetta þarf ekkert að vera endilega vitlaust en almenningur, hann þarf að vita þetta. Það þarf að tala opinskátt um þetta. Fólk verður að vita hvaða hugmyndafræði liggur hér að baki. Almenningur verður að vita þennan raunveruleika og það á ekki að koma í bakið á fólki þegar það heldur að ákveðin framkvæmd hafi borgað sig upp: Nei, þá skal halda áfram að rukka af henni því það þarf að borga upp tvær aðrar framkvæmdir innan sama kerfis. Ég sé að tíminn er á þrotum, frú forseti, þannig að ég bið frú forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.

.