157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:50]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir gott andsvar. Þessi tilkynning ríkisstjórnarinnar og hæstv. forsætisráðherra — ég vil eiginlega segja með leyfi, frú forseti, þetta eru svona ákveðnar bókhaldsbrellur, kostnaðurinn hverfur ekki þó að verið sé að taka dýrar framkvæmdir út fyrir ríkisreikninginn. En reikningurinn kann að líta betur út í einhvern tíma. Eins og hv. þingmaður nefnir, ég vil ekki nota orðið óheiðarleiki en það er eitthvað í því að fá fólk til að segja já við einhverju og fara með eitthvað áfram en átta sig ekki á því að á endanum er það sjálft sem borgar fyrir, eins og hv. þingmaður segir, með dulinni skattlagningu. Auðvitað verður það ekkert annað en skattlagning og það er bara þannig að almenningur mun borga. Mögulega munu þá erlendir ferðamenn að einhverju leyti koma þarna inn, ef maður reynir að gæta einhverrar sanngirni, eins og ég horfi á þetta, án þess að vera sérfræðingur í málinu. En við það að taka út úr á einum stað þannig að sá reikningur lagist og setja það annað — það þarf alltaf einhver á endanum að borga þetta. Það er bara staðan og heiðarlegast í svona málum er að ræða líka bitra hlutann en ekki bara að draga upp ávextina og láta fólk kjamsa á þeim. Þannig að ég deili alveg þeirri sýn og skoðun hv. þingmanns að við búum ekki til fjármagn úr engu, á endanum borgar almenningur.