157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:52]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það að fela útgjöld hefur komið mörgum fyrirtækjum í koll sem hafa reynt að skilja bókhald sitt með þeim hætti. Frægasta dæmið er kannski Enron sem þótti líta aldeilis vel út á reikningum þangað til farið var að skoða heildina hjá fyrirtækinu. Þá féll það fljótt. Ég er ekki að spá neinu slíku varðandi ríkissjóð vegna þessa innviðafélags en hvatinn virðist engu að síður hafa verið sá í því tilviki að fela útgjöldin og færa þau yfir á annan reikning. Um leið þá þarf alltaf að borga og það eru neytendur sem borga á endanum. Og spurning mín til hv. þingmanns er þá þessi: Er ekki alveg ljóst að til þess að geta klárað þetta mál hér í þinginu þurfi að liggja fyrir heildaráhrifin fyrir almenning? Mun þetta fela í sér auknar álögur á almenning eða ekki?