157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:53]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir annað gott andsvar. Það er fullkomlega eðlilegt að ákveðin heildarmynd verði gerð sýnileg almenningi, að almenningur viti raunverulega hvað þetta kemur til með að kosta, að það sé ekki verið að færa þetta yfir í einhvern vasa tímabundið og loka það af þannig að það birtist síðan óvænt hjá almenningi. Almenningur er ekki að fylgjast með svona málum frá A til Ö. Það er okkar hlutverk hér og þess vegna er ég ánægður með þessa spurningu hv. þingmanns og við þurfum bara að fá þetta fram hér í þingsal. Þetta þarf að vera á hreinu. Er almenningur tilbúinn í það? Ég er ekki að segja að allt sé slæmt við þetta mál, alls ekki, en það má ekki vera einhver farangur í skottinu sem menn átta sig ekki á. Það verður allt að vera uppi á borðum. Mér sýnist í dag staðan ekki vera þannig.