innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðilega ræðu. Mig langar að byrja á því að nefna Hvalfjarðargöngin og það fyrirtæki sem stóð þar að baki, af því að hv. þingmaður gerði það að umtalsefni í ræðu sinni, og beina því til hv. þingmanns að það módel, sem sagt Spölur, á í raun og veru ekkert skylt við það innviðafélag sem stendur til að stofna hér, ekki neitt. Inn í það var skrifað og tryggði — ég held að það hafi m.a. tryggt mikinn greiðsluvilja að það stóð alltaf til að við sem þjóð myndum eignast mannvirkið að ákveðnum tíma liðnum. Það á ekki við um innviðafélagið. Þess vegna eru málin mjög ólíks eðlis.
Annað sem mig langar að nefna við hv. þingmann — nú er ég ekki á móti innviðafélagi sem slíku. Í raun og veru var ég frekar spenntur fyrir því ef eitthvað er, en það verður þá eitthvað annað að gefa eftir í staðinn. Við vorum hér síðastliðið vor að ræða veiðigjöld og eitt af því sem var lamið á okkur sem höfðum efasemdir um að það væri verið að fara fram gagnvart þeirri grein samkvæmt loforðum forsætisráðherra, sem reyndar þarf eiginlega ekki að deila um, það var alls ekki verið að gera það í samræmi við loforð hæstv. forsætisráðherra, að það ætti að skila sér beint í vegina. „Heim í hérað“ var notað. Þar sem gjöldin yrðu til þar yrði sko farið í átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja. Sama var notað með innleiðingu á kílómetraskattinum fyrir síðustu áramót, til að geta stóraukið átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja.
Vörugjaldið, herra forseti. Sömu rök, allt lýtur þetta að einu: Nú erum við að búa til félag sem ætlar svo í ofanálag að fara að rukka meira, (Forseti hringir.) og þá fyrir ákveðna vegkafla. Spurningin er: (Forseti hringir.) Tekur hv. þingmaður undir það með mér að þetta sé skattahækkun fyrst og fremst? — Afsakið, frú forseti.