innviðafélag.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir gott andsvar. Hann kjarnar þetta ágætlega. Auðvitað er þetta skattahækkun en þá segi ég til varnar ríkisstjórninni: Vonandi fáum við eitthvað í staðinn. En vítin eru til að varast þau og hv. þingmaður nefnir hér nokkur mál, hann nefnir veiðigjöldin, hann nefnir kílómetragjaldið og hann nefnir vörugjöld, að öll þessi mál hafi átt að fara í samgöngur og vegi og jafnvel bara beint í innkeyrsluna hjá Skúla bónda. Þarna var þjóðinni att gegn sjálfri sér. Ákveðnum hópum var att gegn sjávarútveginum og skautunin varð alger, í boði ríkisstjórnarinnar, ekki stjórnarandstöðunnar. Ég vísa því algerlega á bug.
Ég myndi vilja að það yrði ákveðin krafa úr sveitum landsins þar sem menn rukkuðu fyrir þessi loforð, þessa milljarða sem áttu að fara hingað og þangað um landið með þessum skattahækkunum. Það er ákveðinn ótti í mönnum hér, alla vega stjórnarandstöðunni, um að þetta sé enn ein skattahækkunin. Endar hún inni í þessum framkvæmdum í innviðafélaginu? Dæmin sýna að það er ekki alltaf að marka það sem ríkisstjórnin segir. Vonandi hefur maður rangt fyrir sér. Maður trúir því að fólk sé að gera góða hluti. En sporin hræða, traustið er aðeins farið, það er búið að hnekkja því. (Forseti hringir.) Við þurfum að fá meiri vissu í þessu máli.