157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[17:59]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mér fannst reyndar svörin, kannski eðlilega af því við höfum áður átt orðaskipti um skatta, tiltölulega fyrirsjáanleg. Auðvitað er þetta viðbótarskattlagning. Spurningin lýtur kannski meira að því hvort hv. þingmaður taki undir með mér að við þurfum að ákveða hvaða leið við ætlum að fara í skattheimtu og við getum ekki farið allar leiðirnar. Á endanum getur fólk ekkert borgað meira, greiðsluviljann hreinlega þrýtur. Við erum búin að vera að segja þessa frasa alla, t.d. þeir borga sem nota en það nota allir samgöngukerfið, líka þeir sem eiga ekki bíl. Þeir fá vörurnar fluttar í búðina með bíl. Við erum öll að nota þessa innviði saman. En við þurfum að velja hvort við ætlum að vera hér með einhverjar linnulausar hækkanir á kolefnisgjöldum, kílómetragjaldi eða hvort við ætlum að nota þá aðferð að rukka fyrir einstakar framkvæmdir og einstaka vegkafla. Er hv. þingmaður sammála mér í því að við getum ekki tekið allar leiðirnar?