157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:00]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Stutta svarið er bara augljóst: Það er ekki hægt að nota allar leiðirnar. Það mætti kannski líkja þessu við það að mjólka kú, hvort það sé hægt að setja mjaltavél á hana allan sólarhringinn. Ég held að það virki ekki. Hún tæmist fljótt, alveg eins og greiðsluvilji almennings og bara staða almennings fjárhagslega. Það er ekki hægt að blóðmjólka fólk endalaust með sköttum. Það dregur úr nýsköpun, dregur úr framkvæmdavilja fólks almennt í öðru, áhættufjármagn þurrkast upp. Þannig að skattahækkanir verða að vera gerðar með einhverjum skynsamlegum hætti þar sem fólk sér í hvað peningarnir fara og skynjar að það sé að einhverju leyti sanngjarnt og raunhæft.