157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:02]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir prýðisræðu. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með hv. þingmanni hér bæði í samgönguáætlun og sömuleiðis í þessari umræðu sem hér er um innviðafélag. Hv. þingmaður spurði í sinni ræðu: Hvað felst í þeim frumvörpum sem við afgreiðum frá Alþingi? Þetta var lykilspurning, sérstaklega þegar við erum að fjalla um frumvarp þar sem þeir stjórnarliðar sem ég hef hlustað á hafa greinilega ekki sömu sýn á frumvarpið, hver tilgangur þess er og hvert er markmiðið.

Ég hef reynt að draga það fram, bæði hér í andsvörum og sömuleiðis við það að leggja við hlustir á ræður bæði stjórnarliða og þingmanna úr minni hluta, hvernig félagið eigi að vera uppbyggt. Minn skilningur er sá að þetta sé þríþætt. Fyrst er það sem tengist C-hluta sem eru þá markaðsberandi framkvæmdir, ef við getum orðað það sem svo. Í öðru lagi eru það verkefni þar sem ríkið kemur að með fjármagn að hluta til, það er þá færeyska leiðin. Og í þriðja lagi eru það verkefni sem ríkið þarf meira og minna að fjármagna og eru þá verkefni sem við getum flokkað í A3-hluta ríkissjóðs; þ.e. ríkissjóður ber þá meira og minna allan kostnað af verkefninu en innviðafélagið tekur síðan við verkefninu. Skilur hv. þingmaður þetta ágæta frumvarp, innviðafélag, eins og sá sem hér stendur?