innviðafélag.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt ágætisandsvar. Andsvarið lýsir því kannski á hvaða stað þetta mál er sem og orð hv. þingmanns um að stjórnarliðar séu að ræða hér kannski hálfpartinn sitt hvort málið og menn séu ekki með sama skilning á málinu. Þegar þannig er í pottinn búið hefur málið ekki verið nógu vel unnið; það er ekki nægilega skýrt til að menn skilji nákvæmlega út á hvað þetta gengur.
Hv. þingmaður spyr um minn skilning. Já, þetta er svona nokkurn veginn eins og ég skil það, eins og hv. þingmaður: Að þetta sé þríþætt þar sem arðsömustu verkefnin, þar sem mesta umferðin er, beri sig sjálf, séu markaðsberandi, og fjárfestar séu mögulega tilbúnir til að koma að þeim og það sé hægt að fá lán út á þau og gangi svona að ákveðnu leyti þægilega fyrir sig. Svo eru önnur, sem ég fjallaði um í ræðu minni, sem ríkið þarf að koma að með einhverjum hætti. Auðvitað eru verkefnin þess eðlis að þau eru verulega misarðbær. Það er alveg augljóst að verkefni einhvers staðar í miklu dreifbýli og fámenni verða óarðbærari þar sem færri ferðamenn eru og slíkt. En það þýðir ekki að við getum bara einangrað þá staði algjörlega út af kortinu og það gerist ekkert þar áratugum saman. Svo þetta þriðja sem hv. þingmaður nefndi, A3, sem ég er ekki alveg með á hreinu, það er einhvers konar tungumál sem menn nota í fjárlaganefnd og við þessa vinnu. Það eru þá verkefni sem ríkið þarf meira og minna að bera uppi og keyra í gegn. En þetta þarf allt að vera töluvert skýrara þannig að þingheimur (Forseti hringir.) sé allur á einu máli um það út á hvað þetta frumvarp gengur og hvað þá almenningur. (Forseti hringir.) — Afsakið, frú forseti.