innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður skildi eftir spurningu hér í ræðustól. Út á hvað gengur frumvarpið? Hver er tilgangurinn? Nú verðum við þingmenn að fara í skýringargallann og vera svona leikskýrendur eða leiklýsendur því hér í sal eru bara þingmenn úr minni hluta og við fáum ekki aðstoð. Frú forseti er að vísu úr meiri hlutanum en hún hefur svo sem öðrum hnöppum að hneppa eins og er. Ég skil málið sem slíkt að þarna sé að vísu verið að reyna að búa til ákveðið tækifæri; fá félag sem tekur að sér framkvæmdir sem eru arðbærar og eru fjármagnaðar með veggjöldum. Þar af leiðandi opnast eitthvert svigrúm og síðan er allt hitt eftir og þá erum við bara að tala um framkvæmdir á milli Hvítánna og (Forseti hringir.) einn vegkafla frá Akureyri, Þelamörk – Akureyri. Þá er það upptalið og allt hitt eftir.