157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég held að þetta sé algerlega rétt greining hjá hv. þingmanni að milli Hvítanna og þessi Akureyrarvegkafli — ég held að það sé ljóst að það eru framkvæmdir á þessum svæðum sem yrðu markaðsberandi og það arðsamar að þær gætu farið inn í þetta félag. Ég held og mér sýnist, hv. þingmaður kemst ekki aftur í andsvar, veit ég, að það sé líklega hægt að fá lán út á félagið þar sem þú ert með einhverjar arðbærar framkvæmdir þannig að þú getir fengið lán annars staðar frá einhverri fjármálastofnun eða lífeyrissjóðum. Þetta er bara algjörlega rétt, þetta eru þessi svæði sem hv. þingmaður er að nefna. Mér finnst annað vera svona látið í veðri vaka hér af stjórnarþingmönnum. Mér finnst það. En ég ætla þeim ekki að þeir séu ekki að segja alveg satt, en það hefði verið gott að hafa einhverja af þeim hérna í þingsal. Það er dapurlegt að sjá enga stjórnarþingmenn með þetta stóra mál á meðan stjórnarandstaðan er hér þéttskipuð.