innviðafélag.
Frú forseti. Við munum eflaust mörg eftir því þegar ríkisstjórnin ákvað að setja um þetta mál og fleiri sínar hefðbundnu markaðsumbúðir. Mig minnir að það hafi verið ræsum vélarnar, sem ætti núna að drífa í gang en hér erum við og eins og má heyra á umræðunni í þingsal þá er fleiri spurningum ósvarað en svarað í þessu mikilvæga máli. Þó að grunnhugmyndin hljómi vissulega vel, í mín eyru altént, frú forseti, eru samt ákveðin atriði sem liggja ekki fyrir, sem er bagalegt í svo umfangsmiklu máli og vandséð hvernig verði leyst úr því. Ég ætlaði að gera að umtalsefni mínu hér og fara yfir þær staðreyndir eða þá punkta sem er hægt að lesa sig í gegnum af gögnum málsins.
Fyrsti punkturinn í því er að málið eins og það var rætt hérna í 1. umræðu og eins og það lítur út í dag er talsvert ólíkt eða alla vega í ákveðnum þáttum. Það sem var kynnt við 1. umræðu málsins var einhvers konar leið til að innheimta veggjald á svæði við t.d. Reykjanesbraut eða á Suðurlandsvegi, Vesturlandsvegi og nota þjónustugjaldið, eins og það var orðað, til að byggja upp samgöngumannvirki á öðrum stað, t.d. Fljótagöng, og flestar umsagnir frá umsagnaraðilum tóku mið af því. Málið ku hafa fengið frekar litla umfjöllun inni í nefndinni og umsagnir umsagnaraðila tóku mið af því að þessi veggjöld eða þjónustugjöld á einu svæði ættu að fara annað og nefndarálit meiri hlutans, samanber breytingartillögur hans um að gjald fyrir notkun eigi að vera þjónustugjald, tekur mið af þessum að því er virðist ranga skilningi.
Í nefndaráliti meiri hlutans segir að sjálfstæð tekjuöflun félagsins geri því kleift að taka lán á markaði til langs tíma og hraða með því uppbyggingu verkefna umfram hefðbundin ríkisverkefni, sem hljómar mjög vel, en nefndarálit meiri hlutans miðar hins vegar að því að tekjuöflunin felist í þjónustugjaldi eins og áður segir, þ.e. að ekki sé gert ráð fyrir því að gjaldið sé innheimt með álagningu, en án álagningarinnar er reikningsdæmið um að félagið verði svona snjóbolti sem rúllar áfram sjálfur fallið í rauninni um sjálft sig þar sem ekki er hægt að byggja upp eigið fé í félaginu sem er einn af kostunum við þessa aðferð.
Markmið frumvarpsins er að innviðafélagið fái tiltekna vegi og verkefni til sín og rukki gjald fyrir notkun og uppbyggingu mannvirkjanna. Það gjald verður hvorki skattur né hefðbundið þjónustugjald heldur gjald sérstaks eðlis sem ætlað er að standa undir fleiri atriðum en þjónustu, er núna orðið eitt orðalagið. Með öðrum orðum verður margínan lögð ofan á hefðbundna þjónustugjaldið og sú margína býr til hagnað og byggir upp eigið fé í innviðafélaginu sem síðan er hægt að nota til að byggja upp samgöngumannvirki annars staðar. Þar af leiðandi, óbeint, verður gjald innheimt af vegi A nýtt til að byggja upp vegarkafla eða göng eða hvað það er á svæði B.
Þrátt fyrir að það sé ekki að finna í gögnum málsins þá hefur verið flökkusaga hér á göngunum undanfarið að það verði gerður radíus, að það verði ekki hægt að rukka gjald á einu svæði, einum vegarkafla eða hvað svo sem það er nema láta það fé renna til uppbyggingar á öðrum stað innan þess radíuss. Eins og ég segi hef ég ekki fundið þessu neina stoð í gögnum málsins en þetta er eitt af því sem maður hefur heyrt hérna aðeins fleygt og eitthvað sem ætti að skoða þó að maður staldri fljótt við hvernig þeir radíusar myndu í rauninni líta út þar sem það blasir við að suðvesturhornið er kannski það sem myndi nú fá inn flestar tekjurnar hvað þetta varðar. Það má því segja að það þyrfti að koma fram að rukka mætti fyrir endurheimt kostnaðar við grunnvirki, kostnað við uppbyggingu, rekstur, viðhald og þróun samgöngumannvirkis, eftir atvikum skilgreinds samgöngukerfis, fjármagnstekjur eða hagnaðarhlutfall og þá mögulega skilgreina þak á margínuna til þess að þetta gangi upp lagalega. Ástæðan fyrir því að ég segi það er t.d. dómur Hæstaréttar frá 5. júní 2024 í máli nr. 2/2024. Það mál varðaði svokallað innmötunargjald Landsnets en deilt var um það hvort 1. málsliður 1. mgr. 12. gr. raforkulaga væri tæk gjaldtökuheimild. Það var ekki fallist á það af hálfu Hæstaréttar en hins vegar gefið grænt ljós á að heimilt væri að innheimta þjónustugjald með margínu eins og er uppleggið hér en gjaldtökuheimildir 7. gr. frumvarpsins og 17. gr. vegalaga eru hins vegar tæplega nógu afdráttarlausar eða skýrar til að komast í gegnum það nálarauga sem hæstaréttardómurinn teiknaði upp í því máli sem ég nefndi, þannig að af því er hægt að draga þá ályktun, frú forseti, að það verði að skýra gjaldtökuheimildina sjálfa miklu betur til að félagið geti náð þeim markmiðum sem að er stefnt, því ef það er ekki lagaheimild fyrir því að rukka meira en bara þjónustugjaldið þá verður lítið til þess að byggja ofan á, sem er grunnhugsunin með hugmyndinni.
Síðan má aðeins ræða þessa hugmynd um hvort það sé yfirhöfuð sanngjarnt að ætla að taka gjald á einum stað til að byggja upp annars staðar. Við þekkjum auðvitað öll fyrirkomulagið í Hvalfjarðargöngunum þar sem þú borgaðir fyrir að keyra í gegnum göngin og það fór í uppbyggingu á þeim göngum og engum öðrum. Það má spyrja, og ég ætla að leyfa mér sem þingmaður Reykjavíkur að spyrja, hvort íbúum suðvesturhornsins finnist það ýkja sanngjarnt að greiða fyrir vegarkafla á sínu svæði til þess að greiða fyrir uppbyggingu annars staðar á landinu. Auðvitað þekkjum við það að við greiðum með okkar sköttum uppbyggingu eða þjónustu fyrir aðra en okkur sjálf. Það er sjálfsagt. Það felst í því að reka ríki, en það slær mig aðeins öðruvísi og ég velti því fyrir mér hvort það sé farsælasta nálgunin til árangurs að stilla þessu samt upp með þessum hætti. Það er að vísu forsenda, til að það sé tekið fram, fyrir gjaldheimtunni að raunhæf hjáleið sé til staðar fyrir notendur, þ.e. að það yrði tæplega rukkað fyrir notkun á uppbyggingu Kjalarnessins eða Reykjanesbrautarinnar þar sem enginn annar kostur er til staðar. Það er engin önnur hjáleið til staðar en Sundabrautin gengi t.d. líklega upp í þessu ljósi þar sem það væri enn raunhæft að fara í gegnum Mosfellsbæ og svo Esjumelana eins og við þekkjum í dag.
Frú forseti. Það liggja örlítið á reiki nokkur atriði varðandi samspil félagsins við þingið. Málið allt miðar að því að innviðafélagið verði félag í C-hluta ríkisreiknings. Til þess að svo megi verða verður obbinn af vegaframkvæmdunum að standast svokallað markaðspróf, þ.e. meiri hluti tekna félagsins verður að vera veittur á markaðsforsendum og ekki háður meðgjöf ríkisins. Að sama skapi má hvorki þingið né ráðherra hafa einhver stórkostleg afskipti af þessu félagi eða hvað það er að ákveða, samanber t.d. breytingartillögu í nefndaráliti meiri hlutans um að gjaldskrá verði ekki háð staðfestingu ráðherra. Upplagið á þá víst að vera þannig, frú forseti, eins og ég skil það, að umhverfis- og samgöngunefnd muni útlista í samgönguáætlun tiltekin verkefni sem fallið gætu að markaðsforsendum innviðafélagsins. Það lítur þá á það sem einhvers konar hlaðborð og getur þá pikkað út þau verkefni og það er þá skilgreint sem að þingið sé ekki að hafa afskipti af þessum ákvörðunum, þannig að hér er verið að gera tilraun til þess að hvorki þing né ráðherra geti haldið einhverjum sérstökum framkvæmdum umfram aðrar sérstaklega að þessu félagi með sitt markaðspróf og sínar ákvarðanir á markaðsforsendum.
Að sama skapi virðist frumvarpið gera ráð fyrir því að ráðherrar fjármála og samgöngumála geti gert samninga sín á milli um að afhenda félaginu tiltekna vegi eða verkefni. Hér verð ég aðeins að spyrja mig, frú forseti, ákveðinnar grundvallarspurningar. Það segir með öðrum orðum í 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins, með leyfi forseta:
„Ráðherra, í samráði við ráðherra sem fer með samgöngumál, er heimilt að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum sem tilheyra ríkinu í formi hlutafjár.“
Hér, frú forseti, er rétt að nefna 40. gr. stjórnarskrárinnar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum.“
Þetta þekkjum við. Í 40. gr. segir jafnframt:
„Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.“
Þannig að það er að mínu mati, frú forseti, ekki hægt án þess að brjóta 40. gr. stjórnarskrárinnar að gera 4. gr. þannig úr garði, eins og ég las hérna rétt áðan, án aðkomu þingsins þar sem það má ekki taka svona eignir nema með skýrri lagaheimild. Það liggur fyrir alveg skýrt í frumvarpinu að ákvörðun þessi eigi ekki að koma til í fjárlögum. Það er því mitt mat og fleiri að til að þetta standist stjórnarskrá og áskilnað þessara grunnlaga þyrfti að skerpa á því að 6. gr. heimild yrði í fjárlögum fyrir slíku framsali alveg beint, því að svona opinn tékki fer í gegn með þessum grunnlögum og það þyrfti að liggja miklu skýrar fyrir hvað felst í þessari heimild til að standast þessa grunnreglu.
Tíminn er að renna frá mér en mig langar að lokum að nefna annað sem er óskýrt í frumvarpinu sem er að það er ekki skýrt að ríkið eignist mannvirkin að tilteknum tíma loknum. Eins og við þekkjum frá hefðbundnum PPP-verkefnum eins og Spalarverkefninu þá er ekki mælt um það með skýrum hætti í frumvarpinu að ríkissjóður eignist byggð mannvirki að nýju eftir tiltekinn tíma eða þegar verkefnið hefur verið greitt upp og hæfilegri ávöxtun náð. Það yrði þá væntanlega háð samningum hverju sinni eða upplausn félagsins og þá er rétt að benda á að heimild er til þess að einkaaðilar eignist allt að tvo þriðju af hlutafé félagsins, að því gefnu að ríkissjóður fari með neitunarvald í stjórn eða skipi meiri hluta stjórnarmanna. Það er því óljóst, frú forseti, hvernig verður farið með það að koma mannvirkjum þessum aftur í ríkiseigu eða hvort það standi til eða yfir höfuð sé áhugi á því. Að mínu viti er þetta þannig grundvallaratriði að það yrði að liggja fyrir áður en frumvarp þetta verður gert að lögum.
Frú forseti. Ég fór hérna yfir kannski það helsta. Ég vil endurtaka að fyrir mitt leyti finnst mér grunnhugmyndin hljóma vel. Ég fagna því einlægt þegar stjórnvöld og ríkjandi valdhafar reyna að hugsa í lausnum, hugsa aðeins út fyrir kassann jafnvel, og ég held að grunnhugmynd af þessu tagi gæti orðið mjög farsæl í samstarfi við einkaaðila sem myndu vilja fjárfesta til þess að flýta fyrir þessari uppbyggingu sem við vitum að er svo brýn víða. Það breytir því ekki að því miður eru grundvallaratriði sem eru enn of mikið á reiki og það er ekki, eins og ég hef farið yfir, hægt að segja að það leysist einhvern veginn seinna eða verði greitt úr því þegar nær dregur eða eitthvað slíkt. Um sum atriði blasir við að ef þeim verður ekki breytt er um stjórnarskrárbrot að ræða, það finnst mér nú blasa við sem eitt atriði, fyrir utan að mér finnst við eiga inni að skoða aðeins betur þessa hugmynd og hvort við teljum að það muni vekja almenna sátt í samfélaginu að það séu kannski svolítið sömu aðilarnir víða sem eru að greiða fyrir þessa uppbyggingu sem mun eiga sér stað fyrst og fremst annars staðar. Í öllu falli þarf þetta að liggja betur fyrir en eins og ég segi, grunnhugmyndin hljómar vel og það stendur ekki á sjálfri mér að hugsa í öllum tiltækum skynsamlegum lausnum til þess að láta þetta einhvern veginn ganga upp. En þetta mál eins og það er búið akkúrat núna er ekki tækt til að vera gert að lögum.