157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:27]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu sem var mjög upplýsandi og hún var gagnrýnin. Eins og hv. þingmanni er einum lagið þá nær hún að kljúfa atómið í frumvörpum þegar þarf á því að halda og ég held að hægt sé að segja að hv. þingmaður hafi gert það ágætlega í þessari ræðu. Hv. þingmaður byrjaði sína ræðu á að vitna í hæstv. ríkisstjórn þess efnis að það átti að ræsa vélarnar hjá Vegagerðinni, minnir mig að það hafi verið. Átti ekki að rjúfa síðan kyrrstöðuna í gangagerð? Ég tek undir með hv. þingmanni hvað það varðar að ég fagna öllum góðum hugmyndum þess efnis að við getum hert hér á og flýtt framkvæmdum og öðru og ekki veitir af. En mig langar, frú forseti, að hv. þingmaður fari aðeins betur ofan í það sem hún kom inn á sem snýr að 40. gr. stjórnarskrárinnar, hvað það þýðir, fyrir þann sem hér stendur sem er svona leikmaður þegar kemur að lögfræðilegri túlkun. Sömuleiðis hef ég heyrt talað um 6. gr. heimildina í fjárlögum, sem er mjög mikilvægt, held ég, að fara yfir í þessari umræðu af því að ég held að það sé alveg ljóst að til þess að það form sem hér er um rætt geti gengið upp þá verði að taka málið til baka. Mér sýnist að það eigi að gera það í nefnd milli 2. og 3. umræðu og gera þær breytingar á frumvarpinu sem slíku til þess, ef ég hef skilið málið rétt, að það standist 40. gr. stjórnarskrárinnar.