innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið. 40. gr. stjórnarskrárinnar snýst í grunninn um þá grundvallarhugsun að girt sé fyrir það mjög kirfilega og með mjög skýrum hætti að það sé hægt í rauninni sólunda eignum ríkisins án þess að fyrir því liggi alveg skýr heimild í lögum, alveg skýr. Þegar t.d. fjárlögin taka þá ákvörðun eða hvað það er þá er það gert með ákveðinni heimild í þar til bærum lögum. Það hefur heyrst hér að þar sem frumvarp þetta fer vissulega í gegnum þetta ágæta hús þá megi segja sem svo að það séu þá lög sem er verið að setja og þau til þess bær að færa þessar eignir til eða frá að hentugleika ráðherra eins og frumvarpið gefur heimild til. En þá er lykilatriði að það er ekki tiltekið hvaða eignir. Ég þekki engan sem getur kvittað upp á það að hafa einhvers konar opna heimild til ráðherra án þess að tiltaka einu sinni hvaða eignir er um að ræða með algjörlega skýrum hætti og standist þessa mjög skýru grundvallarhugsun stjórnarskrárinnar um að svona fjármunir og ákvarðanir hvað þá varðar verði að fara í gegnum löggjafann.