innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka kærlega fyrir andsvarið og fróðleikinn sömuleiðis. Það sem vakir fyrir mér hér í andsvörum við hv. þingmann er að reyna að kalla það fram sem mér þótti skorta verulega á í umræðunni sem átti sér stað á laugardaginn. Þá var mjög oft vitnað til þess að það væri hugsanlega hægt að taka inn framkvæmdir á Kjalarnesi og þær yrðu færðar yfir og þá myndaðist ákveðinn höfuðstóll o.s.frv. og þá gæti félagið farið og tekið næsta skref og notað þessa eign til að veðsetja og fjármagna. Er það ekki réttur skilningur hjá mér að þá þarf til þess, þó svo að þetta sé tekið fram hér í drögum að lögum og nefndaráliti, 6. gr. heimild fjárlaga til þess að þetta sé heimilt, að taka þessa eign sem hefur verið bæði til umræðu í samgönguáætlun (Forseti hringir.) og sömuleiðis þegar kemur að lögum um innviðafélag?