innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og efnismikla og ágætisyfirferð yfir álitamál varðandi það hvernig gjaldtökuheimildir eru formaðar. Þingmenn hafa rætt þetta sín á milli, líka í kjölfar umfjöllunar í þingflokkum og það hafa komið fram sjónarmið um að það gæti verið skynsamlegra að gjaldtökuheimildin byggist ekki á gjaldtökuheimildum vegalaga heldur sé sjálfstæð inni í frumvarpinu um innviðafélagið og þar sé nákvæmar tilgreint að gjöldin geti tekið mið af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreinds samgöngukerfis. Ég boðaði það hér í framsögu í 2. umræðu að mér fyndist eðlilegt að nefndin myndi taka málið til sín aftur milli 2. og 3. umræðu og fara yfir þau sjónarmið sem hér hefðu komið fram. Ég tek eftir því að það er komin líka fram önnur breytingartillaga sem lýtur eiginlega einkum að bílaleigum og það getur verið sjálfsagt að fara yfir þau sjónarmið líka í nefndinni. Þá væri markmiðið að reyna að ná sem breiðastri sátt um þetta en líka að tryggja að gjaldtökuheimildirnar standist alla skoðun og hefur verið leitað liðsinnis lögfræðinga í fjármálaráðuneytinu við að útfæra hugsanlega breytingu í þessu efni.