157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:35]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir andsvarið. Eins og ég reifaði í ræðu minni þá skil ég það sem svo að markmiðið væri að innviðafélagið fengi að setja einhvers konar margínu ofan á hefðbundna þjónustugjaldið því að þjónustugjaldið í eðli sínu getur ekki verið með hagnað, þjónustugjaldið á bara að standa undir því sem það kostar að veita þjónustuna. Þá ber að líta til hæstaréttardóms frá 2024 í tilfelli Landsnets og svokallaðs innmötunargjalds. Þar var fallist á að það væri heimilt að innheimta þjónustugjald með margínu en ramminn sem var teiknaður upp um skilyrðin til þess að það væri hægt, til að standast lög, voru frekar skýr. Að mínu viti eru gjaldtökuheimildir, eins og frumvarpið kveður á um það í 7. gr. og 17. gr. vegalaga, tæplega nógu afdráttarlausar eða skýrar til þess að komast í gegnum þetta nálarauga, þetta mjög skýra nálarauga sem Hæstiréttur setti þá með þessu fordæmi og teiknaði upp í þessu máli. Að mínu viti þarf að skýra gjaldtökuheimildina betur til að félagið geti náð þeim markmiðum sem að er stefnt, að þetta eigið fé geti orðið til því þjónustugjaldið muni ekki geta stuðlað að því. Það má ekki rukka meira ef þetta á að heita þjónustugjald og til að fá að setja margínu ofan á þjónustugjaldið þyrfti að uppfylla ákveðna mjög skýra kríteríu sem ég get ekki séð að sé fyrir hendi.