innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta svar frá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur og tek bara undir þessar ábendingar og vangaveltur. Ég held að þetta sé nákvæmlega það sem við erum að huga að og til þess er leikurinn gerður. Síðan vildi ég bara hnykkja á því að gagnvart 40. gr. stjórnarskrárinnar finnst mér mjög eðlilegt að nýta 6. gr. fjárlaga til að tilgreina hvaða eignir færist inn í félagið. Í greinargerðinni eru sérstaklega nefnd t.d. Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót sem einhvers konar heimanmundur félagsins til að skapa þar strax tekjustreymi og þannig hafa jákvæð áhrif á lánskjör og standa undir ákveðnum grunnrekstri. Mér fyndist mjög eðlilegt að slíkir gjörningar, og eins gjörningar sem gætu verið hluti af sérstökum samningi milli iðnaðarráðherra og innviðafélagsins um einstök verkefni, geti kallað á 6. gr. heimildir (Forseti hringir.) til að lagalegur grunnur sé algerlega tryggður í þessu efni.