157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:39]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar og svarið er í rauninni bara skýrt. Við erum sammála um að frumvarpið eins og það liggur fyrir er ekki nógu skýrt gagnvart stjórnarskránni um að gera þá kröfu um þessa skýru lagaheimild varðandi tilfærslu á ríkiseignum. Ég geri því ráð fyrir að frumvarpið breytist þess efnis sem er vel því að öðru leyti yrði fyrirkomulagið, eins og það er teiknað upp í frumvarpinu eins og það er núna, brot á stjórnarskrá hvað þetta varðar.