157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[18:47]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Mig langaði að byrja á að ræða hvað gerist við slit félagsins eða hvað gerist við slit dótturfélaganna. Ég er að velta því upp og kannski í þeirri von að framsögumaður málsins, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, geti upplýst mig um hvernig þessu er háttað eða einhver annar hér í húsi sem veit það. Málið er að það er ítrekað sagt að Sund & Bælt sé einhvers konar fyrirmynd og hvernig Færeyingar gera þetta. En málið er að mér sýnist að bæði í Danmörku og í Færeyjum og reyndar í Noregi líka, þar sem er innviðafélag að störfum með ágætisárangri, sé það 100% í ríkiseigu. Svo eru verkefnin fjármögnuð með ýmsum hætti. En eignarhaldið er 100% í ríkiseigu. Kannski er spurningin þar: Hvað gerist við slit dótturfélaga? Það er mjög mikilvægt að við hér áttum okkur á hvað gerist, því ef við ætlum að fá hluthafa að hverju dótturfélagi eða einhvers konar þriggja dótturfélaga pakka þá finnst mér nauðsynlegt að þetta liggi fyrir. Til að mynda: Þyrfti ekki að vera einhver klásúla um að við hverja framkvæmd, eftir x mörg ár, eins og var með Hvalfjarðargöngin, myndi hverri samgönguframkvæmd vera skilað til ríkisins þegar ákveðinn arður væri búinn að myndast fyrir þann sem er að fjármagna verkefnið? Það er eiginlega með ólíkindum ef það liggur ekki fyrir hvernig þetta á að vera. Við getum skoðað innviðafélög um allan heim og ég hef ekki fundið eitt dæmi um að það liggi ekki fyrir hvað gerist eftir x árafjölda. Yfirleitt í öllum samgönguframkvæmdum sem eru unnar í samvinnu við einkaaðila er einhver tímarammi, yfirleitt í kringum 20–30 ár, 20–50 ár er ekkert óalgengt og jafnvel allt upp í 70 ár eins og í stórum framkvæmdum í Bandaríkjunum. Þá eru risafjármögnunaraðilar sem koma að borðinu en þá er þetta allt mjög skýrt, hvað má innheimta og eftir hversu mörg ár ríkið eða hvert fylki eignast framkvæmdina. Ég tel algerlega lykilatriði að við fáum upplýsingar um þetta áður en þetta mál heldur lengra.

Við erum búin að ræða að við þurfum kannski líka að fá smá upplýsingar um af hverju þessi leið er valin, vegna þess að við erum með frábært dæmi, Hvalfjarðargöngin. Færeyingar horfðu til okkar, þeir eru búnir að vera að byggja upp hver göngin á fætur öðrum, vegna þess að Hvalfjarðargöngin voru arðbært verkefni sem gekk mjög vel. Það var svokölluð BOT-framkvæmd, einkaaðilar komu að borðinu, komu með þekkingu, komu með fjármagn en það var alveg skýrt hversu mikið mátti innheimta eða yfir hversu langan tíma, hvernig þeir þurftu að sinna samgönguframkvæmdinni og hvernig henni yrði skilað aftur til ríkisins. Og það var líka alveg á hreinu hvað gerðist þegar framkvæmdinni var skilað til ríkisins. Þá lá ljóst fyrir að innheimta á veggjöldum myndi hætta þegar framkvæmdir væru búnar að borga sig upp að fullu. Það var staðið við það. En í þessu innviðafélagi vitum við ekki neitt um hvað gerist þegar samgönguframkvæmdin er tilbúin. Segjum að fjárfestir komi hérna að pakka þar sem verður Sundabraut, gefum okkur að Sundabraut og tvöföldun á Hvalfjarðargöngunum séu einn pakki, segjum að það taki 25 ár fyrir framkvæmdina að borga sig upp með því að það sé eðlilegt viðhald, eðlileg veggjöld á tímabilinu. Hvað gerist eftir 25 ár? Má þá þessi fjárfestir innheimta gjöld út í hið óendanlega? Liggur fyrir hvernig hann þarf að sinna veginum á eftir? Þurfum við ekki að hafa á hreinu að allar framkvæmdir munu enda hjá ríkinu nema, eins og Hvalfjarðargöngin, það sé einhver ástæða til að gera það ekki?

Nú vil ég vera alveg skýr á því að ég tel mjög mikilvægt að fá einkaaðila að málunum, eins og í Hvalfjarðargöngum, vegna þess að það kemur inn með þekkingu og vonandi erlenda fjárfestingu, þó að auðvitað verði kannski einhverjir innlendir fjárfestar þarna líka. En vandamálið sem ég er að reyna að ná utan um, og ég skil ekki alveg nema út frá einhvers konar bókhaldsbrellum, er að við erum með dæmi eins og Hvalfjarðargöngin sem gengu vel og áhættan var öll hjá einkafjárfestum, einkaaðilum, ekki á íslenskum skattgreiðendum. Núna ætlum við að ríkisvæða áhættuna. Þá verðum við að spyrja okkur: Af hverju? Ef það verða óarðbær verkefni sem fara þarna inn verður sett eigið fé inn í þessi dótturfélög eða inn í þetta innviðafélag, ýmist í formi peninga eða annarra framkvæmda þannig að við munum liggja með peninga þarna undir, peningar skattgreiðenda munu liggja þarna eins og þessu er stillt upp núna. Þá þurfum við að svara spurningunni: Af hverju? Ein skýring gæti verið örlítið hagstæðari fjármögnun. En þá liggjum við líka á peningum sem við gætum verið að nýta í annað. Það er bara reikningsdæmi sem er ekkert víst að yrði hagkvæmt fyrir skattgreiðendur ef það yrði reiknað til enda. Þannig að spurningunni er ósvarað. Af hverju þessi leið en ekki svokölluð BOT sem snýr að því að áhættan er ekki hjá skattgreiðendum heldur hjá einkaaðilum sem byggja upp, koma með þekkingu, reka mannvirkið og skila því til ríkisins?

Í þessu félagi vitum við ekkert hvað gerist á eftir. Ég bara neita að trúa því að við ætlum að fara inn í þetta þannig. Í Danmörku, Sund & Bælt, 100% ríkiseign; Noregi, 100% í eigu ríkisins; Færeyjum, 100% í eigu ríkisins. Þannig að spurningin hjá þeim er ekki hvað gerist við slit, eða eins og þegar Sund & Bælt á að vera að fullu búið að borga sig upp, ég held að það sé árið 2036 sem gert er ráð fyrir því. Þá er það bara ríkið sem ákveður og er mögulega búið að ákveða að innheimta einhver veggjöld en lægri, að öllum líkindum verða þau lægri, bara til að standa undir viðhaldi, eða ætla að innheimta gjöld að fullu til að fara í næstu framkvæmd því að nú er alltaf verið að tala um þessi snjóboltaáhrif. En þetta er 100% í eigu ríkisins. Það er að því leyti mjög skýrt. Í þessu frumvarpi stendur mjög skýrt að það er lykilatriði að það sé hægt að selja mannvirkið ef fyrirtækinu gengur illa. Segjum að dótturfyrirtæki fari á hausinn við þessa samgönguframkvæmd, þá þarf að vera hægt að selja hana. Gott og vel. En þá er líka eins gott að það sé mjög skýr samningur á bak við, þannig að þegar það er selt, af því að allt er komið í hnút, hvað er verið að selja? Er verið að selja aðgang að tekjum út í hið óendanlega? Er verið að selja samning þar sem er kveðið skýrt á um hvað eigi að byggja, hversu mikið og hvernig á að reka mannvirkið? Það þarf að malbika. Það þarf að gera alls konar sem þurfti til að mynda í Hvalfjarðargöngunum og þar var þetta allt mjög skýrt.

Þetta, frú forseti, er ekki skýrt. Við getum ekki samþykkt þetta nema við vitum hvað við erum að gera. Við getum ekki gefið heimild til stjórnarmanna í þessu félagi eða framkvæmdastjóra, í raun og veru fjárveitingavald frá Alþingi eða nánast skattlagningarvald. En ég hef ekki heyrt svör við þessu. Hvað gerist við slit? Nú sé ég að ég á nokkrar sekúndur eftir. Ég ætlaði að fara einnig yfir að þetta snýst um að þeir geti valið verkefni eftir forgangsröðun Alþingis, ekki eftir einhverju stjörnumerki í samgönguáætlun heldur forgangsröðun sem Alþingi setur.

Frú forseti. Ég held að ég verði að óska eftir að koma í þriðju ræðu. Ég hef ekki alveg lokið máli mínu.