157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

afsal þingmennsku.

[12:30]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseta hefur borist bréf, dagsett 8. júní 2026, frá 8. þm. Suðurkjördæmis, Vilhjálmi Árnasyni. Bréfið er svohljóðandi:

„Með bréfi þessu segi ég af mér þingmennsku á Alþingi frá og með 8. júní 2026 þar sem ég hyggst hverfa til annarra starfa. Á þeim 13 árum sem ég hef átt sæti á Alþingi hef ég eignast marga góða samstarfsmenn, vini og kunningja. Ég vil þakka þingmönnum, ráðherrum og starfsfólki Alþingis fyrir afar gott samstarf á þeim tíma og óska þeim velfarnaðar í þeirra mikilvægu störfum í þágu þjóðarinnar. Það hefur verið mér mikill heiður að eiga sæti á Alþingi Íslendinga og taka þátt í störfum þess. Ég vænti þess að eiga áfram gott samstarf við Alþingi og ríkisstjórn Íslands á nýjum vettvangi.

Virðingarfyllst,

Vilhjálmur Árnason, 8. þm. Suðurkjördæmis.“

 

Ég vil af þessu tilefni færa Vilhjálmi Árnasyni þakkir fyrir störf hans á Alþingi. Ég óska honum fyrir hönd okkar allra velfarnaðar í framtíðinni.

Við þingmennskuafsal Vilhjálms Árnasonar tekur Ingveldur Anna Sigurðardóttir sæti á Alþingi og verður 8. þm. Suðurkjördæmis.

Ingveldur Anna Sigurðardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og býð ég hana velkomna til starfa að nýju.