157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[12:32]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (U):

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt þegar umræðuefni í störfum þingsins skila sér út í samfélagið. Ég talaði hér um öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í síðustu störfum þingsins og það hefur skilað sér í mörgum athugasemdum. Örfáir einstaklingar hafa fundið það út að ég hafi verið að gagnrýna öryggisleit og að ég væri á móti öryggisleit á Keflavíkurvelli, sem er auðvitað alveg gjörsamlega fáránlegt, og ég hafi verið að tala niður til starfsfólks, sem er enn fáránlegra. Það hefur ekkert verið annað en fagmennska og vel unnið á þeirri leið sem ég hef farið á Keflavíkurflugvelli og ég hef ekkert undan því að kvarta. Það var eingöngu verið að benda á ákveðna hnökra. Mbl.is hefur fjallað um þetta mál og á mjög góðan hátt og afleiðingin af þeirri umfjöllun hefur skilað því að mér hefur verið boðið hreinlega út á Keflavíkurflugvöll að kynna mér aðstæður og koma mínum sjónarmiðum að. Ég hef fengið gífurlega marga pósta frá fólki sem hefur lent í ýmsum hrakningum við að fara í gegnum öryggisleitina. Við áttum okkur ekki á því þegar við erum algjörlega heilbrigð hvað það er að fara í gegnum svona leit þegar maður þarf hreinlega að leggja frá sér hækjur eða annan hjálparbúnað sem maður er með, fara úr skóm og síðan að reyna að komast í viðkomandi skófatnað; þegar þú þarft að nota önnur tæki sem eru þegar farin frá þér og þú stendur þarna úti á miðju gólfi gjörsamlega bjargarlaus. Ég tel að við getum breytt þessu og ég er ofboðslega ánægður með það að öryggisleitin á Keflavíkurflugvelli hafði samband og bauð mér í heimsókn sem ég er búinn að þiggja og ég mun fara og kynna mér það mál. En ég vil bara segja eins og segir í einum tölvupósti sem ég fékk, með leyfi forseta:

„Ég tel að taka þurfi þessi mál til alvarlegrar skoðunar, bæta verklag, fræðslu og fagmennsku í öryggisleitinni þannig að einstaklingar með sérþarfir og heilbrigðisvandamál njóti þeirrar virðingar og tillitssemi sem þeir eiga rétt á. Gangi þér vel með þessa umræðu. Ég er jafnframt sannfærður um að þetta vandamál snerti mun fleiri en einungis þá sem eru með gangráð enda eru margir sem ferðast með nauðsynlegan tækjabúnað eða búa við sambærilegar aðstæður.“

Það er nefnilega einmitt þetta sem hefur verið bent á, það er tækjabúnaður sem fylgir fólki. Ég segi: Þetta kostar ekki peninga, þetta kostar bara það að finna rétta verklagið og koma fram með virðingu og réttlæti þannig að allir geti farið í gegnum þessa leit án þess að þurfa að finnast þeir hafa verið niðurlægðir. Við eigum að sjá til þess og það er okkar verk.