157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[12:36]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Frú forseti. Heilbrigðiskerfið er kjarninn í okkar norræna velferðarsamfélagi. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sagðist í upphafi þessa kjörtímabils ætla að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um allt land. Við sögðumst ætla að fjölga hjúkrunarrýmum, stytta biðtíma barna, auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Nú erum við, einu og hálfu ári síðar, að gera það sem við sögðumst ætla að gera. Á u.þ.b. hálfu ári, frá því í lok mars þar til í september, mun skammtímahjúkrunarrýmum hafa fjölgað um 170. Til samanburðar má nefna að á árunum 2019–2024 fjölgaði hjúkrunarrýmum aðeins um 69. Heilbrigðisráðherra hefur sagt að þeim þurfi að fjölga um 100 á ári til að halda í við öldrun þjóðarinnar. Færri bíða í dag eftir hjúkrunarheimili á Landspítala. Núna í lok maí voru þeir 76 en lengi vel hefur talan verið á milli 100 og 120. Við sögðumst líka ætla að stytta biðtíma barna og auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Við erum að gera það með því að styrkja barna- og unglingateymi á Norðurlandi, styrkja geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi, styrkja Geðheilsumiðstöð barna og styrkja BUGL varanlega um 55 milljónir aukalega á ári. Bið barna eftir sálfræðingi á heilsugæslu hefur styst og verið er að vinna að styttingu á biðtíma barna eftir ADHD-greiningu. Þá sögðumst við ætla að fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Það hefur verið gert með heildarsamningi við SÁÁ, fé til að sinna meðferð yfir sumartímann og samningum um aukið fjármagn til Krýsuvíkur, Hlaðgerðarkots og Frú Ragnheiðar. Við erum að efla lágþröskuldaúrræði án biðtíma til að grípa geðvanda fyrr áður en hann verður alvarlegur.

Forseti. Við sögðumst ætla að efla heilbrigðiskerfið, fjölga hjúkrunarrýmum, stytta biðtíma barna, bæta geðheilbrigðisþjónustu og þjónustu fólks með fíknivanda. Þetta erum við að gera og þessu munum við halda áfram.