Störf þingsins.
Frú forseti. Ég er mættur í árlega ræðu mína þar sem ég hvet forseta Alþingis til að hlutast til um það að Svarta keilan, svokölluð, listaverk, gjörningur, sem á að hefja til skýjanna borgaralega óhlýðni og var sett hér upp sem einhvers konar níðstöng gagnvart Alþingi fyrir framan inngang í Skála, verði fjarlægð. Þetta hefur verið afstaða forsætisnefndar alveg frá þeim tíma er Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var forseti. Sturla Böðvarsson heitinn, fyrrverandi forseti Alþingis, hnykkti rækilega á því í blaðagrein árið 2018 að hér væri um háðung gagnvart Alþingi að ræða. Ég bendi á þetta núna í því ljósi að það eru komnir nýir herrar í borgarstjórn og ég trúi ekki öðru en að meiri hluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hafi það í sér að fjarlægja þessa níðstöng, færa hana á einhvern annan stað þar sem skilaboðin til Alþingis eru ekki með þeim hætti sem blasa við hér dag hvern fyrir framan Alþingishúsið. Þetta er það sem ég vildi segja um þetta mál í þetta skipti. Ég held að þetta sé áttunda ræðan sem ég held um þetta atriði. Ég hvet virðulegan forseta til að hlutast til um það núna, gera atlögu að því, að þetta svokallaða listaverk, sem er í mínum huga ljótur og lítilsvirðandi grjóthnullungur, verði fjarlægt og fært á annan stað. Það má vera hvar sem er í mínum huga en ekki hér fyrir framan þennan helga stað sem Alþingi er. Það er til háðungar fyrir þingið að þetta sé enn staðan eftir allan þennan tíma.