157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[12:45]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Frú forseti. Vorið er loksins gengið í garð og sumarið er handan við hornið. Fuglarnir syngja sína fegurstu tóna og dásamleg lykt af nýslegnu grasi fyllir loftin og ekki síst iðar Austurvöllur af lífi og gleði. Í hjörtum margra foreldra og barna er eftirvænting ríkjandi um þessar mundir. Einhverjir eru að leggja lokahönd á skipulagningu sumarfrísins og ég gæti trúað því að sumir foreldrar séu með örlítinn kvíðahnút í maganum yfir skráningu á sumarnámskeið, það á a.m.k. við um þá sem hér stendur. Skólarnir eru að útskrifa nemendur og ég sé fyrir mér stolta foreldra og hoppandi kát börn með vitnisburð vetrarins í umslagi og tilbúin að hlaupa fagnandi út í frelsi sumarfrísins. Þetta er tími kaflaskila, nýs upphafs og endalausra tækifæra fyrir unga fólkið okkar.

Forseti. Leiðinlega oft heyri ég umræðu í þjóðfélaginu um að lesskilningi hafi farið hrakandi. Ég hef unnið lengi með börnum og ungmennum og í gegnum mín störf undanfarin ár hef ég ekki orðið vör við að unga fólkið okkar skilji ekki hvað felist í einföldu jái og hvað felist í neii. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi göngum við til atkvæða um stóra spurningu: Eigum við að ganga að samningaborðinu og semja um aðild og sjá í sameiningu hvað samningurinn inniber?

Forseti. Fyrir mér er valið skýrt og byggir á von og forvitni um framtíðina. Neiið segir aftur á móti: Ég vil ekki sjá samninginn. Ég vil ekki skoða þau tækifæri sem gætu falist í honum. Svo einfalt er það. Sýnum ungu kynslóðinni okkar að við þorum að mæta framtíðinni með opnum hug, hvetjum þau til dáða, fögnum tækifærum og leyfum krafti vorsins að leiða okkur áfram. Eigið dásamlegt sumar.