Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fyrir ekki svo löngu var það hversdagslegur hlutur að mæta starfsfólki í matvöruverslun sem heilsaði manni, skannaði vörurnar og aðstoðaði við greiðslu. Þá voru mannleg samskipti við búðarkassann sjálfsögð og eðlileg. Nú er okkur ætlað að skanna vörurnar sjálf, við göngum sjálf frá greiðslu og við yfirgefum verslunina án mannlegra samskipta. Ekkert bros, enginn býður góðan daginn, engin samskipti. Einn starfsmaður situr kannski úti í horninu einangraður og bíður eftir að komast í símann sinn. Sjálfvirknivæðingin er hafin og útrýmir nú heilum starfsgreinum á methraða. Gervigreindin mun aðeins herða á þessari þróun. Sumir segja að við munum aðlagast, en hvað ef breytingarnar eru hraðari en aðlögunarhæfni okkar? Áhættan er gífurleg. Með auknu atvinnuleysi veikist samningsstaða launafólks á meðan stór tæknifyrirtæki soga til sín auðinn. Þessu fylgja einnig aðrar alvarlegar afleiðingar; aukin félagsleg einangrun, hnignun mannlegrar færni, misnotkun persónuupplýsinga, þróaðri netárásir, fjársvik, dreifing upplýsingaóreiðu og pólitísks áróðurs ásamt sjálfvirkri ákvarðanatöku mikilvægra stofnana. Ekki má heldur gleyma gríðarlegu umhverfisspori gervigreindarinnar. Hvort sem okkur líkar betur eða verr stefnum við inn í óvissa framtíð. Ég spyr því hv. þingmenn sem sitja hér í þingsal: Eru þeir tilbúnir fyrir það sem koma skal? Hafa hv. þingmenn gert allt sem í þeirra valdi stendur til að búa þjóðina undir þessa nýju tíma, þessa miklu óvissutíma?