Störf þingsins.
Frú forseti. Það kann að vera að það sé að bera í bakkafullan lækinn að tala enn og aftur um frumvarp um brottfararstöð. Það er nú samt svo að umræða um þetta mál hefur verið töluverð hér á Alþingi og jafnframt í samfélaginu og hún hefur tekið á. Þess vegna er ástæða til að ræða málið vel. Að langmestu leyti hefur umræðan snúist um börn og veru þeirra í brottfararstöð. Ýmis félagasamtök sem bera hag barna fyrir brjósti hafa komið því skýrt á framfæri við okkur í hv. allsherjar- og menntamálanefnd að það sé að þeirra mati aldrei réttlætanlegt að börn séu svipt frelsi sínu, hvort sem það er með eða án foreldra sinna. Á þessu sjónarmiði hef ég skilning.
Við höfum undirgengist skyldur þess efnis að taka á móti fólki sem hér sækir um alþjóðlega vernd með mannúð að leiðarljósi og við höfum undirgengist skyldur með öðrum ríkjum varðandi umgengni um ytri og innri landamæri Schengen-svæðisins. Einnig er það svo að til þess er ætlast af stjórnvöldum að þau hafi möguleika á því að knýja á um að ákvarðanir þeirra séu virtar. Sjónarmið þessi vegast á og við þurfum að freista þess að finna leið sem fer því sem næst bil beggja.
Þegar öll þessi sjónarmið eru vegin er það mín niðurstaða að við verðum að hafa yfir að ráða úrræði sem verður algjört lokaúrræði, þ.e. að vista fjölskyldur með börn í brottfararstöð. Það er von mín að það komi örsjaldan og kannski aldrei fyrir að fjölskyldur með börn verði vistaðar á brottfararstöð. Það liggur fyrir að það beri að beita öðrum og minna íþyngjandi úrræðum sem tiltekin eru sérstaklega í lögum um útlendinga áður en að því kemur að vistun í brottfararstöð komi til álita. Einungis verður heimilt að vista barn með fjölskyldu sinni á brottfararstöð þegar brýna nauðsyn ber til og sem síðasta úrræði. Gerðar eru strangari kröfur um mat á nauðsyn þess að vista barn í brottfararstöð auk þess sem færri tilvik munu gilda um það hvenær megi vista börn þar. Tímamörk vistunar barna eru skýrt afmörkuð og mun skemmri en varðandi vistun fullorðinna. Hv. allsherjar- og menntamálanefnd hefur sniðið af frumvarpinu agnúa í viðleitni sinni til að koma þessum málum þannig fyrir að í þau fáu skipti sem fjölskyldur með börn verða vistaðar í brottfararstöð verði aðbúnaður þeirra með þeim hætti að börnin verði lítið eða ekkert vör við að þau séu í lokuðu úrræði.