157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[12:58]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Nýlega gekk ég í félag eldri borgara sem er í sjálfu sér ekki fréttnæmt en ég er mjög stoltur og þakklátur fyrir að vera hluti af þessum hópi, hópi sem berst fyrir réttindum sínum og auknum lífsgæðum. Það þekkja flestir hér í þessum sal að félög eldri borgara hafa um árabil verið öflugar raddir eldri borgara og barist fyrir málum sem skipta okkur máli í daglegu lífi, málefnum sem mættu fá meiri athygli hér í þinginu. Svo eitthvað sé nefnt eru meðal helstu baráttumála félagsins bætt kjör eldri borgara, sanngjarn lífeyrir og öflugt almannatryggingakerfi. Einnig hefur félagið lagt áherslu á að eldri borgarar hafi aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu, að biðlistar séu styttri og lyfjakostnaður verði viðráðanlegri. Húsnæðismál eru þessum hópi einnig mikilvæg enda þurfa eldri borgarar öruggt og hagkvæmt húsnæði sem hentar þörfum þeirra. Þá má ekki gleyma að félagið hefur barist gegn félagslegri einangrun og lagt áherslu á tækifæri til virkni, menningar og þátttöku í samfélaginu.

Virðulegur forseti. Þegar rætt er um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem hefur nokkuð verið rædd hér síðastliðna daga, telja margir að eldri borgarar geti notið ákveðins ávinnings við slíka inngöngu. Fyrir þá sem dvelja hluta ársins erlendis eða eiga fjölskyldu í öðrum Evrópulöndum gæti það t.d. auðveldað ýmis praktísk mál. Það þekki ég af eigin raun. Þá hefur verið bent á að aukinn stöðugleiki í efnahagsmálum og nánari tengsl við evrópska markaði gætu haft jákvæð áhrif á kaupmátt og afkomu heimila, ekki síst fyrir eldra fólk sem lifir einungis af lífeyrinum sínum.

Virðulegi forseti. Það sem skiptir mestu máli er að eldri borgarar, ekki síður en ungt fólk, hafi sterka rödd í allri umræðu um framtíð landsins. Með samstöðu og virkri þátttöku getum við, eldri borgarar, stuðlað að samfélagi þar sem reynsla, þekking og framlag eldri kynslóða fær þá virðingu sem það á svo sannarlega skilið.